Sport

Handtekinn eftir árás á ísnum

Deveaux er hér í slagsmálum er hann spilaði með Toronto.
Deveaux er hér í slagsmálum er hann spilaði með Toronto. vísir/getty
Fyrrum NHL-leikmaðurinn Andre Deveaux var handtekinn í Svíþjóð eftir að hafa gengið í skrokk á andstæðingi sínum fyrir leik í úrslitakeppninni í Svíþjóð.

Deveaux réðst á Per Helmersson, keyrði hann ofan í ísinn og lamdi hann síðan ítrekað með kylfunni sinni.

Atvikið náðist á myndband og leikmaðurinn var því handtekinn. Hann var í kjölfarið rekinn frá félagi sínu.

Þessi skapheiti leikmaður spilaði með New York Rangers og Toronto Maple Leafs á ferli sínum í NHL.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×