Erlent

Hammond segist geta endurræst efnahagslífið

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Philip Hammond, fjármálaráðherra nýju stjórnarinnar.
Philip Hammond, fjármálaráðherra nýju stjórnarinnar. Vísir/EPA
Efnahagssamdrátturinn í Bretlandi er nú hraðari og meiri en hann hefur verið síðan í apríl árið 2009, þegar kreppan mikla var í algleymingi.

Þetta kemur fram í nýjustu rannsókn breska fjármálafyrirtækisins Markit, sem mánaðarlega kannar stöðu meira en 1.200 fyrirtækja í Bretlandi.

Breskir fjölmiðlar skýrðu frá þessu í gærmorgun og í kjölfarið féll breska pundið nokkuð hratt.

Ástæða samdráttarins er rakin beint til atkvæðagreiðslu um útgöngu úr Evrópusambandinu, sem haldin var 23. júní. Þar samþykktu Bretar með 52 prósentum atkvæða að yfirgefa ESB.

Philip Hammond, fjármálaráðherra hinnar nýju ríkisstjórnar Ther­esu May, segir að hugsanlega muni hann þurfa að „endurræsa“ breskt efnahagslíf í haust, þegar hann gerir þinginu grein fyrir stöðunni í efnahagsmálum landsins. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×