Lífið

Hallgrímur Helgason við 1000°

Hallgrímur Helgason.
Hallgrímur Helgason.
Í kvöld klukkan 20 verður blásið til dagskrár á kaffihúsinu Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg. Þar verður fjallað um bókina Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason en sú bók hefur talsvert verið í umræðunni uppá síðkastið.

Útvarpsmaðurinn Freyr Eyjólfsson tekur á móti Hallgrími og spjallar við hann um bókina, umfjöllunarefni hennar og mörk skáldskapar og veruleika sem fólki hefur verið tíðrætt um eftir að bókin kom út.

Hallgrímur mun lesa lítið brot úr bókinni, Freyr fær sérstaka gesti í salinn til að koma með innlegg í umræðuna og einnig mega almennir gestur láta til sín taka í umræðunni. Það má því búast við líflegum umræðum og skemmtilegu bókakvöldi, þar sem Hallgrímur verður í eldlínunni við 1000° undir leiðsögn Freys Eyjólfssonar.

Dagskráin er fyrsti hluti stefnumótaraðar höfunda og gestgjafa sem starfsfólk Bókabúðar Máls og menningar bjóða uppá í vor.


Tengdar fréttir

Skrif Hallgríms ollu þungu áfalli

Dóttir Brynhildar Georgíu Björnsson, sem Hallgrímur Helgason byggir aðalpersónuna í nýjustu skáldsögu sinni á, segist hafa orðið fyrir þungu áfalli þegar hún las bókina í september á síðasta ári. Brynhildur var barnabarn Sveins Björnssonar, fyrsta forseta íslenska lýðveldisins, en hún mun hafa sagt Hallgrími sögur af sér og fjölskyldu sinni áður en hún lést árið 2008. Í bókinni, sem ber titilinn Konan við 1000° byggir Hallgrímur söguna að einhverju leyti á frásögnum hennar en skáldar jafnframt í eyðurnar.

Skáldskapur og veruleiki

Guðrún Jónsdóttir skrifar grein í Fréttablaðið þar sem hún lýsir óánægju sinni með bók Hallgríms Helgasonar, Konan við 1000°, en Hallgrímur hefur ekki farið dult með að ýmislegt í ævi og fari aðalpersónunnar, Herbjargar Maríu Björnsson, eigi sér rætur í lífi Brynhildar Georgíu Björnsson, móður Guðrúnar. Guðrún bendir meðal annars lesendum á að vilji þeir kynna sér ævi móður sinnar sé betra að lesa ævisögu Brynhildar Georgíu, Ellefu líf.

Tólfta lífið

Það var í janúar fyrir ári sem ég sá viðtal í DV við Hallgrím Helgason rithöfund. Þar kom fram að hann væri að skrifa bók byggða á sögu móður minnar sem hét Brynhildur Georgía Björnsson og lést í febrúar 2008. Þó ég hefði ekkert af skrifum Hallgríms vitað komu þau mér ekki á óvart því móðir mín hafði eitt sinn sagt mér af símtali á milli þeirra tveggja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×