Bíó og sjónvarp

Hætta ekki framleiðslu nýrra Star Wars mynda á næstunni

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Lucasiflm
Mikil eftirvænting ríkir nú vegna næstu Star Wars kvikmyndarinnar, sem frumsýnd verður fyrir jólin. Til stendur að gera sex myndir sem vitað er um, en aðdáendur þurfa ekki óttast að Star Wars hverfi aftur úr lífum þeirra á næstunni. Disney og Lucasfilm ætla sér í raun að gefa út eina kvikmynd úr Star Wars heiminum á hverju ári, þar til fólk er búið að fá nóg.

Þetta kemur fram í ítarlegri grein Wired um Lucasfilm, en þar segir að líklega verði enginn sem sá upprunalegu myndirnar í bíói á lífi þegar síðasta Star Wars myndin verður gefin út.

Meðal þeirra sex mynda sem stendur til að gera eru myndir VII, VIII, IX og Rogue One. Hins vegar eru söguheimur alveg gríðarlega stór. Um áraraðir hefur heimurinn verið útvíkkaður á milli útgáfu kvikmynda með tölvuleikjum, teiknimyndabókum, þáttum og öðru. Sá heimur hefur að vísu að mestu verið þurrkaður út núna með tilkomu nýju myndanna, en hugmyndirnar lifa auðvitað enn.

Eins og segir í grein Wired gæti Star Wars heimurinn náð tíu þúsund ár, fram og til baka, frá því að Luke Skywalker sprengdi upp Helstirnið. Svo lengi sem starfsmenn Lucasfilm og Disney búa yfir hugmyndum að kvikmyndum verður í raun hægt að framleiða þær. Að minnsta kosti þar til fólk missir áhugann á Star Wars.


Tengdar fréttir

Lést nokkrum dögum eftir að hafa séð Star Wars

Eiginkona Daniel Fleetwood náði til J.J. Abrams í gegnum samfélagsmiðla og fékk hann til að sýna Daniel ókláraða útgáfu af Force Awakens, áður en Daniel lést úr krabbameini.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×