Fótbolti

Gylfi er Íþróttamaður ársins 2016

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd/SÍ/Vilhjálmur

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í kvöld kjörinn Íþróttamaður ársins 2016 en niðurstöður úr kosningu Samtaka íþróttafréttamanna voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í  Silfurbergi í Hörpu.

Þetta er í annað skiptið sem Gylfi hlýtur sæmdarheitið Íþróttamaður ársins en hann var einnig kosinn Íþróttamaður ársins 2013. Aðeins tveir aðrir knattspyrnumenn hafa hlotið þessi verðlaun  

tvisvar eða þeir Ásgeir Sigurvinsson og Eiður Smári Guðjohnsen.

Gylfi hafði verið í öðru sæti í kjörinu undanfarin tvö ár en fékk nú handleika styttuna eftirsóttu á nýjan leik.

Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í öðru sæti í kjörinu í ár og þriðja varð síðan kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Hrafnhildur og Ólafía Þórunn hafa aldrei áður verið  ofar í kjörinu á Íþróttamanni ársins en Hrafnhildur varð þriðja í kjörinu í fyrra.

Hrafnhildur Lúthersdóttir vann þrenn verðlaun á EM í 50 metra laug í maí en íslensk sundkona hafði aldrei áður unnið verðlaun á stórmóti í 50 metra laug. Hrafnhildur komst einnig í úrslit  á Ólympíuleikunum í Ríó þar sem hún endaði í sjötta sæti í 100 metra bringusundi.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir náði besta árangri sem íslenskur kylfingur hefur náð þegar hún Tryggði sér keppnisrétt á LPGA atvinnumótaröðinni í Bandaríkjunum með eftirminnilegum hætti í byrjun desember. Ólafía fór í gegnum öll þrjú stig úrtökumótsins og endaði í öðru sæti á lokaúrtökumótinu en 20 efstu tryggðu sér keppnisrétt á LPGA á næsta tímabili.

Gylfi Þór Sigurðsson er vel að þessu kjöri kominn enda magnað ár að baki hjá íslenska miðjumanninum á öllum vígstöðum.

Gylfi átti frábært ár með bæði Swansea City í ensku úrvalsdeildinni sem og með íslenska landsliðinu í fótbolta sem sló í gegn á heimsvísu með því að komast alla leið í átta liða úrslit Evrópukeppninnar í Frakklandi.

Gylfi sett nýtt íslenskt met í ensku úrvalsdeildinni með því að skora fjórtán deildarmörk á árinu en Eiður Smári Guðjohnsen átti gamla metið sem var frá árinu 2002.

Gylfi skoraði 9 mörk fyrir Swansea í ensku úrvalsdeildinni frá janúar til maí og að flesta mati aðalástæðan fyrir því að velska liðið hélt sæti sínu í deildinni.

Gylfi hélt uppteknum hætti í haust og er kominn með 5 mörk og 5 stoðsendingar í fyrstu 18 leikjum Swansea á þessari leiktíð.

Gylfi var krefjandi hlutverki á miðju íslenska landsliðsins á EM í Frakklandi og einn allra besti leikmaður liðsins sem sló meðal annars út enska landsliðið í sextán liða úrslitum og komst alla leið í átta liða úrslit á sínu fyrsta stórmóti.

Gylfi og félagar í íslenska landsliðinu eru síðan búnir að ná í sjö stig í fyrstu fjórum leikjum sínum í baráttunni um sæti á HM í Rússlandi 2018. Íslenska liðið er búið með tvo erfiðustu útileiki sína í riðlinu og er til alls líklegt á næsta ári.

Gylfi skoraði alls tvö mörk í þrettán landsleikjum á árinu 2016 og annað markanna kom í 1-1 jafnteflisleik á móti Ungverjum í riðlakeppni EM.

Íþróttamaður ársins 1956-2016:

    

1956    Vilhjálmur Einarsson

1957    Vilhjálmur Einarsson (2)

1958    Vilhjálmur Einarsson (3)

1959    Valbjörn Þorláksson

1960    Vilhjálmur Einarsson (4)

1961    Vilhjálmur Einarsson (5)

1962    Guðmundur Gíslason

1963    Jón Þ. Ólafsson

1964    Sigríður Sigurðardóttir

1965    Valbjörn Þorláksson

1966    Kolbeinn Pálsson

1967    Guðmundur Hermannsson

1968    Geir Hallsteinsson

1969    Guðmundur Gíslason (2)

1970    Erlendur Valdimarsson

1971    Hjalti Einarsson

1972    Guðjón Guðmundsson

1973    Guðni Kjartansson

1974    Ásgeir Sigurvinsson

1975    Jóhannes Eðvaldsson

1976    Hreinn Halldórsson

1977    Hreinn Halldórsson (2)

1978    Skúli Óskarsson

1979    Hreinn Halldórsson (3)

1980    Skúli Óskarsson (2)

1981    Jón Páll Sigmarsson

1982    Óskar Jakobsson

1983    Einar Vilhjálmsson

1984    Ásgeir Sigurvinsson (2)

1985    Einar Vilhjálmsson (2)

1986    Eðvarð Þór Eðvarðsson

1987    Arnór Guðjohnsen

1988    Einar Vilhjálmsson (3)

1989    Alfreð Gíslason

1990    Bjarni Friðriksson

1991    Ragnheiður Runólfsdóttir

1992    Sigurður Einarsson

1993    Sigurbjörn Bárðarson

1994    Magnús Scheving

1995    Jón Arnar Magnússon

1996    Jón Arnar Magnússon (2)

1997    Geir Sveinsson

1998    Örn Arnarson

1999    Örn Arnarson (2)

2000    Vala Flosadóttir

2001    Örn Arnarson (3)

2002    Ólafur Stefánsson

2003    Ólafur Stefánsson (2)

2004    Eiður Smári Guðjohnsen

2005    Eiður Smári Guðjohnsen (2)

2006    Guðjón Valur Sigurðsson

2007    Margrét Lára Viðarsdóttir

2008    Ólafur Stefánsson (3)

2009    Ólafur Stefánsson (4)

2010    Alexander Petersson

2011    Heiðar Helguson

2012    Aron Pálmarsson

2013    Gylfi Þór Sigurðsson

2014    Jón Arnór Stefánsson

2015    Eygló Ósk Gústafsdóttir

2016    Gylfi Þór Sigurðsson (2)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×