Gunnar Andersen ákærður 21. ágúst 2012 07:00 Ákæran var gefin út um miðjan júlí síðastliðinn. Brot á þagnarskyldu getur varðað allt að þriggja ára fangelsi.
Embætti ríkissaksóknara hefur gefið út ákæru á hendur Gunnari Andersen, fyrrum forstjóra Fjármálaeftirlitsins (FME), og starfsmanni Landsbankans fyrir brot á þagnarskyldu með því að brjóta bankaleynd, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Gunnar hefur auk þess verið ákærður fyrir brot í opinberu starfi. Ákæran var gefin út um miðjan júlí síðastliðinn. Brot á þagnarskyldu getur varðað allt að þriggja ára fangelsi. Málið snýst um að Gunnar er talinn hafa fengið starfsmann Landsbankans til að afla gagna um fjármál Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns fyrir sig. Þeim gögnum var síðan komið til DV sem birti frétt byggða á gögnunum. Stjórn FME tilkynnti Gunnari að til stæði að segja honum upp störfum föstudaginn 17. febrúar síðastliðinn. Þann 1. mars leysti hún Gunnar síðan formlega frá störfum og kærði hann auk þess til lögreglu fyrir brot í starfi. Starfsmaður Landsbankans sem aflaði gagnanna var sendur í ótímabundið leyfi. Auk þeirra tveggja höfðu Ársæll Valfells, lektor við Háskóla Íslands, og Ingi Freyr Vilhjálmsson, fréttastjóri DV, réttarstöðu sakborninga í málinu. Mál þeirra tveggja síðastnefndu var hins vegar látið niður falla og var þeim tilkynnt um það seinni part júlímánaðar. Ársæll sagði í yfirlýsingu sem send var út 12. mars að hann hefði komið gögnum um Guðlaug Þór frá FME til DV. Maður hefði komið heim til hans og beðið hann um að koma gögnunum til Gunnars Andersen. Gunnar hefði síðar beðið hann um að koma gögnunum til DV, sem hann hefði gert. Þann 29. febrúar birtist síðan frétt í DV um að eignarhaldsfélag í eigu Guðlaugs Þórs hefði fengið greiddar tæpar 33 milljónir króna frá Landsbanka Íslands í júní 2003 vegna sölu hans á umboði fyrir tryggingamiðlun svissneska tryggingafélagsins Swiss Life, sem hann seldi til Landsbankans á þessum tíma.- þsj
Mest lesið Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Mesta kvikusöfnun til þessa Innlent Ætla að fara fram á frávísun málsins Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Innlent Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Innlent „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Innlent Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Innlent Maðurinn er kominn í leitirnar Innlent „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Innlent Fleiri fréttir Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Færri strætóferðir um páskana Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Hellisheiðin opin að nýju og snjókoma í borginni Sjá meira