Handbolti

Guif úr leik í Evrópukeppninni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atli Ævar skoraði þrjú mörk í dag.
Atli Ævar skoraði þrjú mörk í dag. vísir/getty
HSV Hamburg sló Eskilstuna Guif úr átta liða úrslitum EHF-bikarsins í handbolta með fimm marka sigri í síðari leik liðanna, 27-22.

Guif vann fyrri leik liðanna með þremur mörkum, 29-26, en lenti í erfiðum leik gegn sterku liði Hamburg.

Hamburg var tveimur mörkum yfir í hálfleik 13-11 og bættu í forystuna í síðari hálfleik. Þeir unnu að lokum fimm marka sigur, 27-22. Samanlagt 53-51.

Atli Ævar Ingólfsson gerði þrjú mörk fyrir Guif og var tvisvar rekinn útaf í leiknum. Aron Rafn Eðvarðsson stóð í marki Guif, en Kristján Andrésson þjálfar liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×