Innlent

Guðni Th. sendir Guðmundi, Degi og Þóri heillaóskir

Atli Ísleifsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. vísir/eyþór
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendi í gær heillaóskir til handboltaþjálfaranna Dags Sigurðssonar, Guðmundar Þ. Guðmundssonar og Þóris Hergeirssonar í tilefni af því að lið þeirra náðu frábærum árangri á Ólympíuleikunum í Ríó.

Frá þessu segir í tilkynningu frá skrifstofu forsetans.

Dagur er þjálfari þýska karlalandsliðsins í handknattleik sem vann til bronsverðlauna, Guðmundur þjálfar danska karlalandsliðið sem landaði gulli og Þórir norska kvennalandsliðið sem náði bronsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×