Handbolti

Guðmundur verður án eins síns sterkasta leikmanns í Ríó

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Anders Eggert hefur verið í hópi bestu rétthentu hornamanna heims undanfarin ár.
Anders Eggert hefur verið í hópi bestu rétthentu hornamanna heims undanfarin ár. vísir/getty
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska handboltalandsliðsins, getur ekki nýtt krafta hornamannsins Anders Eggert á Ólympíuleikunum í Ríó í næsta mánuði.

Hinn 32 ára gamli Eggert er meiddur á fæti og verður þ.a.l. ekki með danska liðinu í Ríó.

Þetta er mikið áfall fyrir Guðmund og Dani en Eggert, sem leikur með Flensburg í Þýskalandi, hefur verið ein styrkasta stoð danska landsliðsins undanfarin ár.

Casper U. Mortensen, leikmaður Hannover-Burgdorf, verður því að öllum líkindum vinstri hornamaður númer eitt hjá Dönum í Ríó en spurningin er hvort Guðmundur taki annan rétthentan hornamann með.

Sjá einnig: Þessir berjast um að komast í Ólympíuhóp Guðmundar

Þá er ekki ljóst hvort línumaðurinn öflugi, René Toft Hansen, verði orðinn klár í tæka tíð en hann er að jafna sig eftir krossbandaslit.

Guðmundur tilkynnir lokahópinn sem fer á Ólympíuleikana á mánudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×