Handbolti

Guðjón Valur var óstöðvandi í stórsigri

Guðjón Valur skorar og skorar.
Guðjón Valur skorar og skorar. mynd/barcelona
Barcelona er enn ósigrað á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik.

Liðið er búið að vinna alla 22 leiki sína og að þessu sinni var Huesca pakkað saman, 22-43.

Yfirburðir Barcelona gríðarlegir eins og venjulega en flest bendir til þess að liðið vinni alla leiki sína í deildinni annað árið í röð.

Guðjón Valur Sigurðsson fór algjörlega hamförum í kvöld og skoraði tíu mörk úr tíu skotum. Tvö markanna komu úr vítum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×