Handbolti

Guðjón Valur um besta mann Makedóníu: Hann er ekki góður varnarmaður

Arnar Björnsson skrifar
Strákarnir okkar eru klárir í slaginn gegn harðskörpum Makedóníumönnum í lokaleik riðlakeppninnar hér í Metz annað kvöld. Þeir ætla svo sannarlega að leggja allt í sölurnar. Besti maður Makedóna, Kiril Lazarov, er búinn að skora flest mörk í keppninni eða 31 í 46 skotum. Guðjón Valur Sigurðsson þekkir vel til hans, en þeir léku saman hjá Barcelona.

„Hann er ein af bestu hægri skyttunum í boltanum, alveg klárlega. Hann er þekktur fyrir sinn sóknarleik en minna fyrir varnarleikinn. Hann er klárlega sá maður sem við þurfum að stöðva og hafa góðar gætur á,“ segir Guðjón.

Hverjir eru veikleikar hans? „Varnarleikur. Hann hefur nú varla spilað vörn síðustu ár en hann er með gríðarlega gott auga og frábær skotmaður. Það er erfitt að finna veikleika í hans sóknarleik en við þurfum að setja pressu á hann þannig að hann fái eins lítinn tíma og hægt er.“

Lino Cervar, þjálfari Makedóna, hefur verið óhræddur við að taka markvörð liðsins af velli og spila með sjö leikmenn í sókninni.

„Þetta er vopn sem er búið að vera að beita mjög mikið. Þetta gekk samt ekki upp hjá Makedóníu á móti Slóveníu. Þetta er tvíeggja sverð. Við þurfum samt að undirbúa okkur fyrir þetta. Ég er mjög spenntur að sjá hvernig þeir spila á móti Spáni í kvöld,“ segir Geir Sveinsson, þjálfari Íslands.

Kiril Lazarov er besti maður Makedóníu og hættulegastur í sókninni en eru fleiri sem þarf að passa sig á?

„Þeir eru með Manaskov í horninu sem spilar á móti Guðjóni Val í Rhein-Neckar Löwen og svo er línumaðurinn sömuleiðis mjög öflugur. Þetta er borið upp af fjórum til fimm leikmönnum hjá þeim. Það eru fjórir leikmenn búnir að skora 70 prósent af mörkunum þeirra,“ segir Geir.

Alla fréttina úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Sá stærsti og sá minnsti eru saman í herbergi

Íslenska handboltalandsliðið hefur nú lokið fjórum leikjum á HM í handbolta og herbergisfélagarnir eru því búnir að vera í meira en viku saman í herbergi á hótelinu í Metz.

Arnar Freyr: Gömlu kallarnir eru líka fyndnir

Hinn ungi og sterki Arnar Freyr Arnarsson hefur minnt á sig á sínu fyrsa stórmóti og sýnt á köflum hvers hann er megnugur. Flottur strákur sem á framtíðina fyrir sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×