Erlent

Gucci-töskur og rakarastólar á vefuppboði tollsins

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Á uppboði norska tollsins er að finna merkjavöru.
Á uppboði norska tollsins er að finna merkjavöru. NORDICPHOTOS/GUCCI
Tollurinn í Noregi heldur nú vefuppboð á vöru sem lagt hefur verið hald á. Á uppboðinu, sem stendur fram á sunnudag, eru meðal annars ekta Gucci, Mulberry- og Louis Vuitton-töskur, gullarmbönd og demantshringar auk fjölda raftækja eins og til dæmis farsíma og spjaldtölva.

Saumavél og þvottavél eru á uppboðinu, rakarastólar og trampólín auk efnis fyrir byggingageirann og bílaviðgerðir. Hagnaðurinn rennur í ríkissjóð. Slóðin er qxl.no.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×