Enski boltinn

Guardiola kom sjö ára stuðningsmanni City heldur betur á óvart - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hann átti ekki til aukatekið orð.
Hann átti ekki til aukatekið orð.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, kom sjö ára stuðningsmanni liðsins á óvart þegar hann tók á móti honum í leigubíl og fór á rúntinn með drengnum.

Braydon er einhver harðasti stuðningsmaður Manchester City og missir varla af leik.

Það þurfti því ekki að kom á óvart að drengurinn varð í raun orðlaus þegar hann settist upp í bílinn og Spánverjinn beið eftir honum.

Nokkuð skemmtilegur rúntur sem sjá má hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×