Enski boltinn

Guardiola hefur áhuga á Wilshere

Stefán Árni Pálsson skrifar
Wilshere á æfingu með Arsenal.
Wilshere á æfingu með Arsenal. Vísir/Getty
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, mun hafa áhuga á því að klófesta Jack Wilshere í sumar en þetta kemur fram í erlendum miðlum.

Wilshere hefur verið í herbúðum Arsenal undanfarin ár en þessi 24 ára miðjumaður hefur verið mjög óheppinn  með meiðsli á sínum ferli.

Búist er við því að Guardiola fari mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar en hann fékk Ilkay Gundogan frá Borussia Dortmund til liðsins í vikunni.

Guardiola hefur verið knattspyrnustjóri Beyern Munchen undanfarin ár og þar áður var hann stjóri Barcelona. Wilshere hefur leikið 156 leiki fyrir Arsenal á sínum ferli og er Bretinn nokkuð vinsæll í London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×