Enski boltinn

Guardiola búinn að banna pizzur hjá Man City

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guardiola vill hafa menn í formi.
Guardiola vill hafa menn í formi. vísir/getty
Pep Guardiola, nýr knattspyrnustjóri Manchester City, er með eindæmum metnaðarfullur maður.

Guardiola vill að leikmennirnir sínir séu í toppformi og gefur ekkert eftir í þeim málum.

Franski bakvörðurinn Gaël Clichy hefur greint frá því að Guardiola hafi bannað pizzur og annan þungan mat hjá félaginu.

„Hvert einasta smáatriði skiptir máli, hvort sem það er inni á vellinum eða utan hans,“ sagði Clichy og bætti því við að leikmenn sem eru of þungir fái ekki að æfa með aðalliðinu.

City-liðið er nú statt í Kína þar sem það undirbýr sig fyrir komandi tímabil.

City tekur á móti Sunderland í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni sunnudaginn 14. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×