Handbolti

Grótta toppaði á réttum tíma

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Laufey Ásta Guðmundsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lyfta Íslandsbikarnum í Garðabænum fyrir Gróttu.
Laufey Ásta Guðmundsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lyfta Íslandsbikarnum í Garðabænum fyrir Gróttu. vísir/Andri Marinó
Grótta varð á sunnudaginn Íslandsmeistari kvenna í handbolta annað árið í röð og í annað sinn í sögu félagsins. Grótta varð af tækifæri til að sópa úrslitakeppnina þegar liðið tapaði þriðja leiknum á heimavelli gegn Stjörnunni fyrir helgi en stúlkurnar af Seltjarnarnesi komu gríðarlega ákveðnar til leiks í Mýrinni og gengu frá einvíginu með stæl, 28-23, og samanlagt 3-1.

Veturinn olli Gróttu framan af nokkrum vonbrigðum en liðið ætlaði sér að sjálfsögðu alla titlana eftir að hafa orðið deildar-, bikar- og Íslandsmeistari á síðasta tímabili.

Liðið missti af deildarmeistaratitlinum til Hauka og tapaði í bikarúrslitum gegn Stjörnunni. En í úrslitakeppninni var það Grótta sem bar höfuð og herðar yfir andstæðinga sína og sýndi að það er besta liðið á Íslandi í dag. Um það er ekki deilt.

Ung og eldri

Í sterkri liðsheild Gróttu voru tveir leikmenn sem báru af; reynsluboltinn í markinu, Íris Björk Símonardóttir, og 16 ára undrið sem er Lovísa Thompson. Gróttuliðið er auðvitað vel mannað og varnarleikurinn gríðarlega sterkur en þessar tvær stigu upp þegar þess virkilega þurfti.

Íris varði að meðaltali 50 prósent skotanna sem hún fékk á sig í einvíginu, þar af 61 prósent í fjórða leiknum þar sem liðið tryggði sér titilinn. Íris var hreint mögnuð í rimmunni og gat fagnað í leikslok.

En meira að segja hún gat ekki annað en talað um Lovísu Thompson sem skoraði 24 mörk í lokaúrslitunum eða sex mörk að meðaltali í leik. Lovísa skoraði 10 mörk í fyrstu tveimur leikjunum og var með 50 prósent skotnýtingu en þegar beðið var um að lykilmenn Gróttu myndu taka af skarið í sóknarleiknum var það hin 16 ára Lovísa sem gerði það.

Hún skoraði 14 mörk í seinni tveimur leikjunum og bætti skotnýtinguna í 61 prósent. Lovísa skoraði átta mörk í ellefu skotum í fjórða leiknum og var algjörlega mögnuð.

„Ég verð að minnast á hana Lovísu Thompson. Hún er eitthvert undrabarn. Hún er búin að vera mögnuð og það gleymist oft að hún er á fyrsta ári í menntaskóla. Ég dáist að því hvernig hún stígur upp. Hún er eins og gull fyrir okkur í þessari úrslitakeppni,“ sagði Íris Björk um Lovísu eftir leik en sú unga var sami töffarinn og alltaf.

„Það er ekkert annað í stöðunni. Það þarf að sækja á markið og þeir skora sem þora,“ sagði Lovísa við Fréttablaðið eftir leik.

Árlegur viðburður

Kári Garðarsson er að stimpla sig inn sem einn af bestu þjálfurum landsins, en árangur hans með Gróttuliðið undanfarin tvö tímabil er eftirtektarverður. Hann hefur fengið til sín frábæra leikmenn en fengið þá til að spila sem eina heild og byggir á virkilega sterkum varnarleik.

„Er þetta ekki bara árlegur viðburður í maí? Titill á loft hjá Gróttu í TM höllinni,“ sagði Kári hress í leikslok en þarna fagnaði Grótta líka titlinum í fyrra. „Ef við hefðum farið í oddaleik hefði ég verið ein taugahrúga á mánudag og þriðjudag. Ég er rosalega feginn að vera búinn og geta fagnað í kvöld og notið stundarinnar,“ sagði Kári Garðarsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×