Viðskipti erlent

Grikkir ganga til atkvæða í dag

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Tímamót verða í sögu Grikklands og Evrópusamstarfsins í dag þegar Grikkir ganga að kjörborðinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Tímamót verða í sögu Grikklands og Evrópusamstarfsins í dag þegar Grikkir ganga að kjörborðinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Vísir/EPA
Tímamót verða í sögu Grikklands og Evrópusamstarfsins í dag þegar Grikkir ganga að kjörborðinu í þjóðaratkvæðagreiðslu um tilboð lánadrottna. Kannanir sýna að gríska þjóðin er klofin í afstöðu sinni til málsins. Kjörstaðir opnuðu í morgun en tæplega tíu milljón manns eru á kjörskrá í Grikklandi.

Þjóðaratkvæðagreiðslan í dag og niðurstöður hennar er stærsta verkefni evrusamstarfsins til þessa og kemur til með að hafa áhrif á fjármálakerfi heimsins. Gríska ríkisstjórnin hvetur fólk til að hafna tilboði lánadrottna, eða þríeykisins eins og það er oft kallað, en þann hóp skipa framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn og Seðlabanki Evrópu.

Forsætisráðherra Grikklands, Alexis Tsipras, hefur sakað lánadrottna um efnahagslegt hryðjuverk. Wolfang Schauble, fjármálaráðherra Þýskalands, stærsta hagkerfis Evrópu, sagði í gærkvöld að 'nei' í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag þýði ekki endilega útgöngu Grikkja úr evrusamstarfinu. Hann ítrekaði að Evrópa muni ekki snúa baki við Grikkjum, sama hver niðurstaðan verður.

Úrslit ættu að liggja fyrir um sex

Gjaldeyrisborð helstu banka heims verða mönnuð með viðbótarmannskap þegar markaðir opna að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslunni Grikklandi, að því er fram kemur í Financial Times. Kjörstöðum lokar klukkan fjögur að íslenskum tíma og ættu fyrstu tölur úr könnunum sem gerðar eru við kjörstaði að liggja fyrir um hálftíma síðar. Tveimur tímum síðar ættu opinberar tölur að liggja fyrir.

Markaðir í Asíu opna klukkan níu í kvöld að íslenskum tíma og má búast við að niðurstöður úr þjóðaratkvæðagreiðslunni í Grikklandi muni strax hafa áhrif á gjaldeyrismarkaði. Helstu stórbankar heims, eins og Deutsche Bank, JP Morgan og HSBC hafa ræst út viðbótar mannskap þar sem búist er við miklu álagi í gjaldeyrismiðlun.

Fram kemur í Financal Times að sérfræðingar á markaði viti þó ekki almennilega hvað gerist ef Grikkir felli samkomulagið. Fari svo að Grikkir geri það þurfi að liggja fyrir yfirlýsing frá hinum ríkjunum á evrusvæðinu þar sem þau harma útgöngu Grikkja úr myntsamstarfinu til að sannfæra gjaldeyrismarkaði að það sé niðurstaðan.



Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×