Viðskipti innlent

Greiða út 26,9 milljarða úr Framtakssjóði

Sæunn Gísladóttir skrifar
Gangi áætlanir eftir verður búið að greiða út um 60 milljarða úr Framtakssjóði um áramótin.
Gangi áætlanir eftir verður búið að greiða út um 60 milljarða úr Framtakssjóði um áramótin. vísir/valli
Í gær var samþykkt á hluthafafundi Framtakssjóðs Íslands að greiða út í formi arðs og með lækkun hlutafjár alls 26,9 milljarða króna fyrir lok árs. Gangi þessar áætlanir eftir mun sjóðurinn um áramót hafa greitt út rúmlega 60 milljarða króna til hluthafa.

Á fundinum var samþykkt að greiða út arð úr félaginu að fjárhæð 2 milljarðar króna. Einnig var lagt til að hlutafé félagsins yrði lækkað að nafnvirði 11,6 milljóna með greiðslu til hluthafa á genginu 1.000 verður annars vegar greidd út með reiðufé og hins vegar með hlutum að nafnverði 4,56 milljóna í Black Rock Developed World Index Sub-Fund. Stefnt er að því að greiða lækkunina til hluthafa fyrir árslok 2016.

„Það er mjög ánægjulegt að geta skilað fjárfestingunni með þessum hætti til endanlegra eigenda,“ segir Herdís Fjeldsted, framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins. „Ég held að þetta sé með því betra sem við höfum séð hér heima á Íslandi, því bæði er komin reynsla af kaupum og sölu og það er farið að skila sér,“ segir Herdís.

Herdís Fjeldsted, framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins
Framtakssjóður Íslands var stofnaður árið 2009 af 16 lífeyrissjóðum. Framtakssjóður er í eigu þeirra, Landsbankans og VÍS. Frá stofnun hefur sjóðurinn fjárfest fyrir 43,3 milljarða. Því er ljóst að töluverð ávöxtun hefur orðið á fjárfestingum hans.

Sjóðurinn er með starfsleyfi fram til ársins 2019 og með framlengingarmöguleika fram til 2021. „En hvenær sjóðurinn hættir er ekki ljóst það er bara á næstu misserum,“ segir Herdís. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×