Golf

Gott að fá spark í rassinn

Rory er hér svekktur.
Rory er hér svekktur. vísir/getty
Besti kylfingur heims, Rory McIlroy, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Honda Classic.

Norður-Írinn tók því ekki illa heldur mun hann láta mótlætið efla sig í framhaldinu.

„Stundum þarf maður gott spark í rassinn svo maður átti sig á því sem þarf að gera. Eðlilega er ég svekktur en nú sé ég betur hvað ég þarf að leggja á mig," sagði Rory.

„Það eru tveir möguleikar í stöðunni. Ég get lagst niður og vælt eða rifið mig upp. Ég tók frí á föstudeginum þar sem mamma átti afmæli og svo var ég farinn að æfa af krafti degi síðar."

Rory hefur leik á móti í Miami í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×