Handbolti

Glandorf leggur landsliðsskóna á hilluna

Glandorf í landsleik.
Glandorf í landsleik.
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Þýskalands, fékk ekki góðar fréttir í dag þegar Holger Glandorf tilkynnti að hann væri hættur að spila með landsliðinu.

Þessi magnaða örvhenta skytta er aðeins 31 árs gamall og hefði vel getað nýst Degi á næsta HM.

Glandorf lék 167 landsleiki fyrir Þjóðverja og var í liðinu sem vann HM árið 2007.

Hann segist ekki hafa heilsu í að spila bæði með landsliðinu og félagsliði sínu, Flensburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×