Glæsileg umgjörð

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 17. janúar 2012 11:00
Leikarahópurinn stendur sig með Prýði Hér má sjá Kristbjörgu Kjeld og Hilmar Guðjónsson í hlutverkum sínum í Fanný og Alexander sem sýnt er á fjölunum í Borgarleikhúsinu.
Leikarahópurinn stendur sig með Prýði Hér má sjá Kristbjörgu Kjeld og Hilmar Guðjónsson í hlutverkum sínum í Fanný og Alexander sem sýnt er á fjölunum í Borgarleikhúsinu.
Elísabet Brekkan skrifar:
Leikhús. Fanný og Alexander eftir Ingmar Bergman. Sýnt á stóra sviði Borgarleikhússins. Leikarar: Kristbjörg Kjeld, Þröstur Leó Gunnarsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Ísabella Rós Þorsteinsdóttir/Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir, Theodór Júlíusson, Charlotte Bøving, Jóhann Sigurðarson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Kristjana Ósk Kristinsdóttir/Agnes Gísladóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Margrét Ákadóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Hallgrímur Ólafsson, Halldór Gylfason, Rúnar Freyr Gíslason. Leikmynd: Vytautas Narbutas; Búningar: Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir; Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson; Tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson; Leikgervi: Elín Sigríður Gísladóttir Leikstjóri: Stefán Baldursson.

Leikritið Fanný og Alexander hefst á jólakvöldi á borgaralegu heimili í Uppsala á þriðja áratug aldarinnar sem leið. Söguhetjur verksins eru kynntar með söng og gleði. Skömmu síðar dregur til tíðinda í lífi fjölskyldunnar þegar yngsti sonurinn deyr eftir stutta legu. Ekkjan, Emilía, gengur í kjölfarið aftur í hjónaband. Nýi eiginmaðurinn er biskup, pietískur, strangur og óréttlátur. Hann leggur meðal annars hönd á börnin hennar.

Leikritið byggir á kvikmynd Ingmars Bergmans og sjónvarpsþáttum sem frumsýndir voru árið 1982. Í sögunni leitar Bergman fanga bæði í klassískum bókmenntum og eigin lífi. Úr þessari blöndu varð listræn upplifun sem heillaði áhorfendur mjög. Bergman tókst mjög vel upp í leikstjórn á börnunum í titilhlutverki myndarinnar. Í sýningu Borgarleikhússins velur Stefán Baldursson þá leið að láta fullorðinn mann (Hilmar Guðjónsson) leika lítinn dreng á meðan stúlkan Fanný er leikin af barni. Þetta heltir sýninguna svo að maður hálfpartinn tekur ekki mark á vissum atriðum.

Annars skilar leikarahópurinn sínu verki með prýði og einstakar persónur eru hreinlega frábærar. Þar má nefna Gústaf Adolf Ekdahl sem Jóhann Sigurðarson ljáir slíku sprellandi lífi að salurinn titraði á köflum. Gústaf þessi Adolf er hreinræktuð karlremba en þó með stórt hjarta. Charlotte Bøving leikur Lydiu, þýska eiginkonu Karls Ekdahl, af hreinni snilld. Hún er svo beygð en samt svo einlæg og stefnuföst í undirgefni sinni. Elma Lísa í hlutverki hinnar pískuðu Jústínu, vinnukonu prestsins, er einnig eitt eftirminnilegt titrandi laufblað. Kristbjörg Kjeld og Gunnar Eyjólfsson geisla í sínum hlutverkum, Jóhanna Vigdís er glæsileg og litla halta barnfóstran Maja sem Kristín Þóra Haraldsdóttir leikur er trúverðug í sínu neyðarlega hlutverki sem brosandi ástkona manns sem er fjórum sinnum þyngri en hún. Halldóra Geirharðsdóttir lék Emilíu fantavel en það komst fremur illa til skila hversu fljótt hún varð undirgefinn biskupnum sem leikinn var af Rúnari Frey Gíslasyni. Valið á Rúnari Frey í hlutverk biskupsins var ekki nægilega vel heppnað. Kannski er myndin svo greypt inn í okkur hvernig hinn ógeðugi biskup á að vera, horaður, arískur, ljóshærður og litlaus en ekki sætur og sexý eins og Rúnar Freyr.

Lýsing Björn Bergsteins Guðmundssonar í heillandi og ævintýralegri leikmynd Vytautasar Narbutas var góð, ekki síst á hinu skelfilega prestsetri. Jóhann G. Jóhannsson sá um að koma hinni angurværu sænsku tónlist til skila og textarnir hans Þórarins Eldjárn svo langt sem þeir náðu eyrum hlustenda voru áheyrilegir. Það er vonandi að þessir textar og þessi lög festist hér, því ekki veitir okkur af að leysa ýmis lyftulög jólasíbyljunnar af hólmi. Búningar Þórunnar Sigríðar Þorgeirsdóttur voru skemmtilegir þó það væri með öllu óskiljanlegt af hverju biskupinn var látinn íklæðast einhvers konar boxarapásuskikkju. Reyndar var allt hans gervi á skjön við þá persónu sem verið var að skapa.

Niðurstaða: Glæsileg þriggja tíma afþreying sem óhætt er að mæla með.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Glæsileg umgjörð