Golf

Gísli vann Duke of York-mótið

Gísli Sveinbergsson brosir í dag enda náði hann stórkostlegum árangri.
Gísli Sveinbergsson brosir í dag enda náði hann stórkostlegum árangri. mynd/gsí
Hinn bráðefnilegi kylfingur, Gísli Sveinbergsson, gerði sér lítið fyrir og vann hið fræga Duke of York-mót sem fram fór á Royal Aberdeen í Skotlandi.

Þetta er gríðarlega öflugt ungmennamót þar sem aðeins landsmeistarar pilta og stúlkna fá að taka þátt.

Aðeins voru leiknir tveir hringir á mótinu þar sem fresta þurfti leik eftir nokkrar holur í gær vegna þoku. Upphaflega átti að leika þrjá hringi.

Gísli var með tveggja högga forskot eftir daginn í gær og taugarnar brugðust honum ekki í dag.  Hann vann að lokum með fjögurra högga mun eftir að hafa komið í hús á 68 höggum. Hann spilaði á 67 höggum fyrri hringinn.

Ragnhildur Kristinsdóttir tók einnig þátt á mótinu og hafnaði í 35. sæti ásamt öðrum. Hún lék á 81 og 75 höggum.

Þetta er í þriðja sinn sem Íslendingur vinnur þetta mót. Guðmundur Ágúst Kristjánsson vann árið 2010 og Ragnar Garðarsson lék þann leik eftir tveimur árum síðar.


Tengdar fréttir

Gísli áfram í forystu í Aberdeen

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili er áfram í forystu á Duke of York Young Championship ungmennamótinu sem fram fer á Royal Aberdeen í Skotlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×