Golf

Gísli: Á skalanum 1-10 var þetta 9,9

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gísla Sveinbergssyni, hinum bráðefnilega 17 ára gamla kylfingi úr Keili, var fagnað á heimavelli sínum í dag eftir að hann sneri heim með Duke of York-bikarinn.

Gísli varð þriðji Íslendingurinn á síðustu fimm árum sem vinnur þetta gríðarlega sterka og virta ungmennamót þar sem aðeins keppa landsmeistarar.

Arnar Björnsson, íþróttafréttamaður Stöðvar 2, hitti Gísla eftir veisluna í Keilishúsinu í dag og spurði fyrst hversu gaman þetta var.

„Á skalanum 1-10 var þetta 9,9. Þetta var rosalega gaman. Það er alltaf gaman að spila í Skotlandi. Allir kylfingarnir þarna voru frábærir enda landsmeistarar og að standa uppi sem sigurvegari var geðveikt,“ sagði Gísli, en bjóst hann við sigri?

„Gummi [Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2010] og Raggi [Ragnar Már Garðarsson 2012] voru búnir að ryðja brautina fyrir migog sýna að þetta er hægt. Ég fór bara inn í vikuna vitandi að ég gæti unnið og svo vann ég.“

„Ég var mjög stöðugur eins og ég hef verið í allt sumar. Ég hitti mikið af brautum og margar flatir, púttin voru góð og allt bara gott,“ sagði Gísli, en hversu hátt stefnir hann?

„Ég stefni að því að fara alla leið; eins langt og ég kemst. Ég ætla byrja á því að fara í háskóla og vonandi gerist maður síðan atvinnumaður og kemst inn á einhverja mótaröð.“

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Gísli vann Duke of York-mótið

Hinn bráðefnilegi kylfingur, Gísli Sveinbergsson, gerði sér lítið fyrir og vann hið fræga Duke of York-mót sem fram fór á Royal Aberdeen í Skotlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×