Handbolti

Giskaðu á rétt úrslit og þú getur unnið áritað treyju frá Guðjóni Val | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Viltu þessa treyju?
Viltu þessa treyju? mynd/skjáskot
Þýsku Íslendingaliðin Kiel og Rhein-Neckar Löwen mætast í seinni leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta annað kvöld. Löwen gerði sér lítið fyrir og vann fyrri leikinn, 25-24, á útivelli.

Guðjón Valur, Alexander Petersson og félagar eru því í ljómandi góðri stöðu fyrir seinni leikinn á heimavelli sínum en þýsku meistararnir teljast sigurstranglegri miðað við hvernig liðin eru að spila þessa dagana.

Heimasíða Meistaradeildarinnar býður handboltaáhugamönnum að giska á rétt úrslit í leiknum en það er gert hér. Verðlaunin eru ekki af verri endanum því einn af þeim heppnu sem giskar á rétt úrslit fær áritaða treyju frá íslenska landsliðsfyrirliðanum Guðjóni Val Sigurðssyni.

Guðjón Valur heldur áfram að hlægja að faðir tíma en þessi ótrúlegi íþróttamaður hefur spilað frábærlega fyrir Löwen á tímabilinu. Hann skoraði fjögur mörk í fyrri leiknum á móti Kiel. Hornamaðurinn 38 ára gamli er fimmti markahæstur í þýsku 1. deildinni með 138 mörk í 22 leikjum.

Guðjón fer betur yfir málið í myndbandinu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×