Handbolti

Geir Sveinsson: „Ég er bara mjög óhress með þessa spurn­ingu þína“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Geir Sveinsson var pirraður á spurningum blaðamanns en baðst að lokum afsökunar.
Geir Sveinsson var pirraður á spurningum blaðamanns en baðst að lokum afsökunar. Vísir
Landsliðsþjálfarinn Geir Sveinsson var eðlilega afar svekktur eftir eins marks tap okkar manna gegn Slóveníu á heimsmeistaramótinu í handknattleik fyrr í dag.

Í viðtali eftir leikinn brást Geir illa við spurningu Guðmundar Hilmarssonar, íþróttafréttamanns á Morgunblaðinu og Mbl.is, hvort að það væri ekki ljóst að það yrði „brekka það sem eftir er í riðlinum þar sem þið eruð án stiga eftir fyrstu tvo leikin?“

Geir sagðist ekki skilja spurninguna.

„Það er al­veg vitað að við þurf­um stig til að kom­ast áfram. Ef við vor­um með vænt­ing­ar um að taka þrjú eða fjög­ur stig út úr þess­um tveim­ur fyrstu leikj­un­um þá tal­ar þú um brekku héðan í frá. Ég er bara mjög óhress með þessa spurn­ingu þína,“ sagði Geir og bætti svo held­ur bet­ur í rödd­ina; „Þetta er al­veg út úr korti. Að sjálf­sögðu er þetta brekka. Við erum komn­ir hingað til að vinna hvern ein­asta hel­vít­is leik og það er það sem við erum að gera. Við töpuðum með einu marki. Næsta spurn­ing,“ sagði Geir í viðtalinu.

Guðmundur segir Geir hafa orðið enn æstari í framhaldinu og að lokum orðið reiður. Svo reiður að hann rauk úr viðtalinu. Stuttu síðar sá Geir að sér, gekk til Guðmundar og bað hann afsökunar.

Ísland hefur nú spilað tvo leiki, gegn sterkustu andstæðingunum í riðlinum að margra mati. Í 27-21 tapinu gegn Spáni var fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson verulega pirraður með spurningu Þorkells Gunnars Sigurbjörnssonar, íþróttafréttamanns RÚV, um hinn margfræga „slæma kafla“.

Svör Guðjóns Vals vöktu mikla athygli en þeir Þorkell féllust í faðma daginn eftir og gerðu upp fyrra viðtalið í öðru viðtali þar sem andrúmsloftið var léttara.

Athygli vakti að Guðjón Valur var hvíldur í leiknum í dag og nýtti Bjarki Már Elísson tækifærið í fjarveru hans. Bjarki var að margra mati besti leikmaður Íslands í dag.

Geir útskýrði ákvörðun sína í viðtali við Arnar Björnsson að leik loknum. Viðtalið má sjá hér að neðan.

Ísland mætir Túnis í þriðja leik sínum á HM á morgun. Guðmundur og Gummi Ben grínuðust með uppákomuna á Twitter eftir leikinn eins og sjá má að neðan.


Tengdar fréttir

Ég er á góðum stað í lífinu

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson segist vera ofsalega glaður að vera með landsliðinu á HM. Tuttugasta stórmótið hjá honum og miðað við formið á fyrirliðanum eiga mótin klárlega eftir að verða fleiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×