Handbolti

Geir og félagar í fjórða sætið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Geir Sveinsson er að gera góða hluti.
Geir Sveinsson er að gera góða hluti. Vísir/Getty
Geir Sveinsson og lærisveinar unnu góðan sjö marka sigru á Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Geir og lærisveinar voru einu marki yfir í hálfleik, en í síðari hálfleik spýttu þeir í lófana og unnu að lokum sjö marka sigur; 23-30.

Andreas Rojewski var markahæstur hjá Magdeburg með sjö mörk, en Timm Schneider og Patrick Zieker voru markahæstir hjá Lemgo með fimm hvor.

Magdeburg er í fjórða sæti deildarinnar með sautján stig, en Lemgo er í tómu veseni með fjögur stig í sautjánda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×