Handbolti

Geir: Það vilja allir spila þennan leik

Arnar Björnsson skrifar
Það er verðugt verkefni fyrir landsliðsþjálfarann Geir Sveinsson að undirbúa sitt lið fyrir leikinn gegn Frökkum í dag.

„Það þurfa allir að leggja sig 110 prósent fram. Út á það gengur þetta og það hefur liðið verið að gera hingað til,“ segir Geir.

„Drengirnir eru búnir að standa sig frábærlega og lagt mikla vinnu á sig fyrir hvern einasta leik. Koma vel undirbúnir. Einbeitingin hefur verið upp á tíu og þannig verður það að vera gegn Frökkunum.“

Það eru ekki margir sem hafa trú á íslenskum sigri í dag en það vantar ekki trúna í íslenska liðið.

„Ég trúi alltaf. Ég fer í hvern einasta leik til þess að vinna og við leggjum allt í leikina til að vinna. Ég segi alltaf að ef maður fer inn á völlinn og gefur 110 prósent þá er maður nokkuð nærri því að vera alltaf sigurvegari sama hvernig leikurinn fer,“ segir Geir en eru allir heilir?

„Ég held að enginn vilji segja mér að það sé eitthvað að. Það vilja allir spila þennan leik og fá sitt besta út honum. Aron markvörður er með flensu en aðrir tilbúnir. Ef Aron er ekki klár þá var ég að spá í að nota Einar Þorvarðar en hann er því miður ekki á 28 manna listanum,“ sagði Geir léttur.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).






Tengdar fréttir

Allt undir á stærsta sviði í sögu HM

Það verður væntanlega sett áhorfendamet þegar Ísland spilar við Frakkland í 16-liða úrslitum á HM. Leikurinn fer fram á knattspyrnuleikvangi sem er búið að breyta í handboltahöll. Von er á um 28.000 manns.

Óli Guðmunds: Vonandi stöngin inn hjá mér í dag

"Mér hefur liðið nokkuð vel í þessum leikjum hingað til. Við erum komnir í 16-liða úrslit og erum sáttir með það. Þó svo að við hefðum kannski viljað fá annan mótherja. En nú er þetta bara úrslitakeppni,“ segir skyttan Ólafur Guðmundsson.

Ásgeir: Frakkarnir bera mikla virðingu fyrir okkur

Ásgeir Örn Hallgrímsson er búinn að spila í Frakklandi í fimm ár og þekkir því vel til í frönskum handbolta. Hvað segir hann um umfjöllunina um mótið hérna í Frakklandi?

Björgvin Páll: Lofaði Gunnleifi að halda hreinu í dag

Markverðirnir verða sem fyrr í sviðsljósinu í dag og þeirra bíður ekki auðvelt verkefni frekar en annarra. Björgvin Páll Gústavsson var byrjaður að undirbúa sig í gær er hann kom til Lille.

Aron Rafn veikur | Allir aðrir æfa

Strákarnir okkar eru nú á leið á æfingu á fótboltavellinum glæsilega Stade Pierre-Mauroy en það verður mikil upplifun fyrir þá að koma þangað inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×