Viðskipti erlent

Gefur frá sér 4.237 milljarða

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Prinsinn Alwaleed bin Talal ætlar að gefa allan auð sinn til góðgerðarmála.
Prinsinn Alwaleed bin Talal ætlar að gefa allan auð sinn til góðgerðarmála. nordicphotos/afp
Sádiarabíski prinsinn og auðjöfurinn Alwaleed bin Talal lýsti því yfir í gær að hann hygðist gefa allan sinn persónulega auð á næstu árum. Forbes metur eignir Alwaleeds á 4.237 milljarða króna, sem samsvarar um tvöfaldri vergri landsframleiðslu Íslands. Prinsinn vermir 34. sætið á lista Forbes yfir auðugustu menn heims.

Prinsinn, sem er sonur Salmans konungs Sádi-Arabíu, segir auð sinn verða notaðan til að draga úr fordómum, bæta stöðu kvenna og takast á við náttúruhamfarir auk annars. Alwaleed hefur lengi verið þekktur sem einn helsti talsmaður kvennabaráttu í Sádi-Arabíu.

Þegar Alwaleed tilkynnti um áform sín nefndi hann góðgerðarsjóð Bills og Melindu Gates sem sinn helsta innblástur. Bill Gates tók ákvörðun prinsins fagnandi og sagði hana hvatningu til allra sem vinna góðgerðarstarf í heiminum.

Alwaleed hafði áður látið um 463 milljarða króna renna til sjóðs síns, Alwaleed Philanthropies. Prinsinn gegnir ekki opinberu embætti í Sádi-Arabíu. Hann er stjórnarformaður fjárfestingarsjóðsins Kingdom Holding Company sem á meðal annars hlut í Twitter og Apple. Meðal eigna Alwaleeds má nefna 371 herbergis höll í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, Boeing 747-400 flugvél og 85 metra snekkju.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×