Golf

Garcia með sinn tólfta sigur á ferlinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Garcia lék frábært golf um helgina.
Garcia lék frábært golf um helgina.
Spánverjinn Sergio Garcia stóð uppi sem sigurvegari á Omega Dubai Desert mótinu sem fram í Dubai um helgina og var hluti af Evrópumótaröðinni.

Garcia lék hringina fjóra á nítján höggum undir pari og hafði betur í baráttunni við Henrik Stenson sem hafnaði í öðru sæti.

Um er að ræða tólfta sigur Garcia á móti á Evrópumótaröðinni en síðast vann hann árið 2014.

Henrik Stenson lék hringina fjóra á sautján höggum undir pari og í þriðja til fjórða sæti voru þeir Lasse Jensen og Tyrell Hatton á fimmtán höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×