Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríflega 130 milljóna gjaldþrot Lækjarbrekku Lýstar kröfur í þrotabú veitingastaðarins Lækjarbrekku nema hátt í 133 milljónum króna. Félagið Brekkan 101 ehf. var úrskurðað gjaldþrota í sumar en engar eignir fundust í búinu og lauk gjaldþrotaskiptum í lok nóvember að því er fram kemur í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag. 9.12.2020 18:26
Eins og allir aðrir en kráareigendur eigi að fá að halda gleðileg jól Kráareigandi í miðbæ Reykjavíkur segist nú íhuga, líkt og fleiri veitingamenn og kráareigendur, að höfða mál gegn stjórnvöldum vegna sóttvarnaaðgerða síðustu vikur. Hann segir um mismunun að ræða og að svo virðist sem kráareigendur séu þeir einu sem ekki eigi að fá gleðileg jól. 9.12.2020 17:33
Hollandsflug frá Akureyri blásið af í vetur Ekkert verður af fyrirhuguðum flugferðum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel í vetur til og frá Akureyri, líkt og áætlað var. 9.12.2020 13:15
Eigendur Finnsku búðarinnar þurfa að greiða þrotabúinu milljónir Eigendur Finnsku búðarinnar sem rekin var í Kringlunni voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða þrotabúi búðarinnar um tíu milljónir króna. Um var að ræða greiðslur frá búðinni til eigendanna, sem þær skýrðu m.a. sem vangoldin laun. 9.12.2020 11:00
Afar fáir tóku yfirtökutilboði Samherja Hlutur Samherja Holding í Eimskip mun aukast lítillega eftir yfirtökutilboð þess fyrrnefnda. Afar lítill hluti hluthafa tók tilboðinu. 9.12.2020 09:05
Fjárfesting sonarins þrefaldaðist Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, segir ótrúlegt að fólk sé til í að ræða kynlíf, geðsjúkdóma og alls kyns aðra hluti við börnin sín en sleppi oft að ræða við þau um fjármál heimilisins. 9.12.2020 09:01
Evran 12 krónum ódýrari en fyrir sex vikum Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst mikið undanfarna daga eftir mikla veikingu hennar gagnvart helstu gjaldmiðlum síðustu mánuði vegna kórónuveirufaraldursins. Þannig kostar evran nú tólf krónum minna en í lok október. 8.12.2020 19:31
Segir tilslakanir hafa gríðarlega þýðingu fyrir rekstraraðila Verslunareigendur eru nokkuð ánægðir með tilslakanir, sem boðaðar voru af heilbrigðisráðherra í dag, enda skiptir það miklu máli þegar jólaverslun er við það að fara á fullt. Tinna Jóhannsdóttir markaðsstjóri Smáralindar segir það skipta miklu máli fyrir rekstraraðila að geta sinnt jólavertíðinni með sem eðlilegustum hætti. 8.12.2020 18:47
Krónan að braggast og þrýstingur á verðlag minnkar Mikil styrking á gengi krónunnar á undanförnum vikum ætti að leiða til umtalsverðrar lækkunar á verði innfluttrar vöru í vetur að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Jákvæðar væntingar vegna frétta af bóluefnum gegn kórónuveirunni hafa sitt að segja um styrkingu krónunnar. 8.12.2020 15:01
Fylltist örvæntingu eftir fréttir dagsins Eigandi Sporthússins telur það mismunun að halda líkamsræktarstöðvum lokuðum til 12. janúar hið minnsta, líkt og gert er ráð fyrir í nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á fimmtudag. Hann segir fréttir dagsins áfall og tjónið sem af lokununum hlýst gríðarlegt. 8.12.2020 14:53
Opna IKEA á fimmtudag eftir fimm vikna lokun IKEA mun opna verslun sína í Kauptúni klukkan tíu á fimmtudagsmorgun. Undirbúningur við opnunina stendur nú sem hæst eftir að tilkynnt var um tilslakanir á sóttvarnareglum í dag. 8.12.2020 14:24
Áfrýjar dómi sem gæti kostað ríkið milljarða Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að áfrýja dómi í máli hjóna sem höfðu betur í dómsmáli gegn Íbúðarlánasjóði. Ríkið segir að þetta sé gert í ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir séu. 8.12.2020 14:15
Íslendingar og Bretar skrifa undir viðskiptasamning Bresk og íslensk stjórnvöld hafa skrifað undir bráðabirgðafríverslunarsamning sem mun taka gildi í ársbyrjun 2021. 8.12.2020 13:13
Ljósmyndara synjað um lokunarstyrk: „Þeir segja að ég hefði getað unnið í öðrum verkefnum“ Rán Péturs Bjargardóttir, ljósmyndari, furðar sig á því að hún skuli ekki eiga rétt á lokunarstyrk frá stjórnvöldum vegna kórónuveirufaraldursins. 8.12.2020 10:08
Reglurnar „mjög einkennilegar“ í ljósi fermetranna 22.500 Framkvæmdastjóri IKEA segir að ef ekki verði slakað á fjöldatakmörkunum á fimmtudag, þannig að unnt verði að opna verslunina á ný, sé jólasalan ónýt. Hann segir núverandi reglur, sem gera aðeins ráð fyrir tíu viðskiptavinum í gríðarstórri versluninni í einu, einkennilegar. 7.12.2020 22:06
54 milljónir í uppsagnarstyrki, endurráða alla og fjárfesta í um 600 bílum Bílaleigan Hertz ætlar að endurráða alla 66 starfsmenn fyrirtækisins sem var sagt upp í september. Fyrirtækið hefur fengið um 54 milljón króna ríkisstuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnafresti en starfsfólk vann allan uppsagnarfrestinn. Forstjórinn segir bílasölu og langtímaleigu hafa gengið vel og býst við að fjárfest verði í um 600 bílum á næstunni. 7.12.2020 21:00
Sjö þúsund flugu með Icelandair í nóvember Lítil breyting hefur orðið í farþegaflugi á vegum Icelandair á milli mánaða og voru farþegatölur í nóvember sambærilegar því sem þær voru í október. Alls flugu um sjö þúsund farþegar milli landa með Icelandair í nóvember, 97 prósent færri en í nóvember í fyrra. 7.12.2020 19:19
Neytendasamtökin hvetja verslanir til að lengja skilafrestinn fram í janúar Athugulir neytendur hafa ef til vill tekið eftir því að það er óbreytt sem áður var; að margar verslanir veita aðeins frest til 31. desember til að skila jólagjöfum. Þetta þykir einhverjum ekki í takt við tíðarandann, nú þegar fólk er hvatt til að forðast hópamyndanir eins og heitann eldinn. 7.12.2020 15:03
Lyf og heilsa kaupir Garðs apótek Haukur Ingason, eigandi Garðs apóteks, og Lyf og heilsa hafa undirritað með sér samning þess efnis að Lyf og heilsa taki yfir rekstur Garðs apóteks sem mun þó áfram verða rekið undir því nafni. 7.12.2020 14:54
Forstjórinn seldi allan hlut sinn í Skeljungi Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, seldi í morgun hlutabréf í Skeljungi fyrir 20 milljónir króna. Hann átti 2,25 milljónir hluta og seldi á genginu 8,78 í gegnum félag sitt Hái klettur. 7.12.2020 13:40
Ráðin nýr framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Wise Inga Birna Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Wise. 7.12.2020 12:55
Allar plastflöskur Coca-Cola á Íslandi úr endurunnu plasti á fyrsta ársfjórðungi Frá og með fyrsta ársfjórðungi 2021 verða allar plastflöskur, sem Coca-Cola á Íslandi framleiðir, úr 100% endurunnu plasti en við breytinguna mun notkun á nýju plasti á Íslandi minnka um 530 tonn. Forstjórinn segir fátt fara meira í taugarnar á honum en að sjá drykkjarumbúðir sem hann framleiðir úti á götu eða í fjörunni. 7.12.2020 12:51
66 starfsmenn Hertz endurráðnir 66 starfsmenn bílaleigunnar Hertz á Íslandi, sem sagt var upp störfum í haust, verða endurráðnir. 7.12.2020 07:20
Landsbankahúsið á Ísafirði til sölu Landsbankinn hefur sett hús sitt við Pólgötu 1 á Ísafirði á sölu. Bankinn seldi á dögunum hús sitt á Selfossi á 350 milljónir. Óskað er eftir tilboðum í eignina í höfuðstað Vestfjarða. 6.12.2020 23:39
Ungur Flateyringur fullvinnur matvæli úr vestfirsku fiskeldi Liðlega tvítug kona á Flateyri hefur stofnað matvælavinnslu sem fullvinnur vörur úr vestfirskum eldisfiski, eins og grafinn lax úr Dýrafirði og reyktan regnbogasilung úr Önundarfirði. Starfsmenn eru orðnir þrír. 6.12.2020 21:11
Fögnuðu óvæntum sigri í máli sem gæti kostað ríkið milljarða Kona sem lagði Íbúðalánasjóð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær segist ekki hafa átt von á niðurstöðunni, en dómurinn er sagður marka tímamót og gæti kostað ríkissjóð á annan tug milljarða. Dómurinn sé sigur fyrir lántakendur. 5.12.2020 12:42
Hlutdeildarlán: Sótt um að byggja 2.333 íbúðir, búið að samþykkja 468 Alls hafa 78 byggingaraðilar skráð sig í samstarf við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að byggja hagkvæmar íbúðir sem fjármagna má með hlutdeildarláni. 5.12.2020 11:23
Sitja uppi með tífaldan málskostnað eftir að hafa neitað að greiða 80 þúsund króna skuld Eignarhaldsfélagið Summus hefur verið dæmt til að greiða tryggingarfélaginu Verði 80 þúsund króna skuld sem félögin tókust á um fyrir dómi. Summus þarf einnig að greiða Verði 800 þúsund krónur í málskostnað, tífalda þá upphæð sem deilt var um. 5.12.2020 09:30
Grillhúsinu skellt í lás eftir tæpa þrjá áratugi Veitingastaðnum Grillhúsinu á Tryggvagötu, sem staðið hefur við götuna í hartnær þrjá áratugi, hefur verið lokað. Þetta staðfestir Þórður Bachmann eigandi Grillhússins í samtali við Fréttablaðið í dag. 4.12.2020 21:14
„Í dag er fallinn tímamótadómur“ Ríkissjóður gæti þurft að greiða lántakendum hjá Íbúðalánasjóði (nú ÍL-sjóðs) á annan tug milljarða eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi uppgreiðsluþóknun sjóðsins ólögmæta í dag. Lögmaður segir þetta tímamótadóm og mikinn sigur fyrir lántakendur. 4.12.2020 18:30
Ekki hægt að nota inneignarnótu úr einni verslun í annarri Samkvæmt nýlega uppfærðum skilareglum Pennans Eymundssonar geta neytendur eingöngu notað inneignarnótur í þeirri verslun sem þær eru gefnar út. Þetta þýðir að ef vöru er skilað í verslun í Kringlunni, er ekki hægt að nota inneignarnótuna í Smáralind. 4.12.2020 15:19
Hreyfill og BSR missa öll einkastæðin sín Hreyfill og BSR missa sérmerkt leigubifreiðastæði sem þau hafa haft til umráða um áratugaskeið í Reykjavíkurborg um helgina og verður nú öllum þeim sem stunda leigubílaakstur leyft að nota þau. Samgönguráðuneytið synjaði kröfu Hreyfils um að fella ákvörðun borgarinnar úr gildi. 4.12.2020 14:00
Fjögur ráðin til Stefnis Theodór Sölvi Blöndal, Vigdís Hauksdóttir, Þorsteinn Andri Haraldsson og Eiríkur Ársælsson hafa öll verið ráðin til starfa hjá sjóðsstýringarfyrirtækinu Stefni að undanförnu. 4.12.2020 12:01
Byggingarkostnaður muni hækka vegna gjaldskrárhækkana hjá Sorpu Viðskiptastjóri á framleiðslusviði Samtaka iðnaðarins segir að byggingarkostnaður muni hækka vegna boðaðra gjaldskrárhækkana hjá Sorpu sem gildi taka um áramót. 4.12.2020 07:59
Búa til bætiefni fyrir búfé úr salti frá fiskvinnslum Lítið fjölskyldufyrirtæki á Vestfjörðum endurnýtir salt frá fiskvinnslum og býr til saltsteina fyrir búfé. Eigendurnir segja fyrirtækið á fljúgandi siglingu því bændur vilji íslenska vöru. 3.12.2020 21:51
Fagnar því að neytandinn hafi haft sigur Formaður Neytendasamtakanna fagnar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli konu, sem neitað var um að fá hægindastól afhentan sem hún greiddi að stærstum hluta fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Hann segir málið ódæmigert; flest mál sem tengist inneignarnótum og rati inn á borð samtakanna varði gildistíma. 3.12.2020 21:21
Neytendasamtökin segja ósanngjarnt að neytendur borgi stuðning við bændur Formaður Neytendasamtakanna segir ósanngjarnt að neytendur verði látnir borga stuðning við bændur með því að hækka álögur á innfluttar landbúnaðarvörur í skjóli kórónuveirufaraldursins. Nær væri að veita bændum beinan stuðning eins og örðum atvinnugreinum. 3.12.2020 19:20
Byggt yrði við hús Súfistans í Hafnarfirði og hann gerður að mathöll Hugmyndir eru uppi um að byggja við Strandgötu 9 í Hafnarfirði, þar sem nú má finna kaffihúsið Súfistann, og breyta jarðhæðinni í litla mathöll. Þá yrði að finna níu smáíbúðir á efri hæðum viðbyggingarinnar. 3.12.2020 08:34
Gjaldþrot í ferðaþjónustu færri en óttast var Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að gjaldþrot fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2020 verði færri en óttast var í sumar. Þá var vonast til að gjaldþrot fyrirtækja í greininni yrðu ekki fleiri en 30 til 40 prósent af heildarfjölda fyrirtækja en nú sé vonast til að hlutfallið gæti mögulega orðið lægra en svo. 3.12.2020 07:36
Vilja sameina kosti útsýnis, gróðurs og heita vatnsins úr göngunum í nýjum baðstað Nýr baðstaður í Eyjafirði er í undirbúningi og er stefnt að opnun hans snemma árs 2022, gangi áætlanir eftir. 2.12.2020 15:12
Kyrrsetningu Heinaste aflétt og skipið selt Namibísk yfirvöld hafa aflétt kyrrsetningu á togaranum Heinaste, sem kyrrsettur var þar í landi í nóvember 2019. Bréf um afléttingu kyrrsetningarinnar var undirritað í gær samhliða sölu á togaranum. 2.12.2020 13:48
Íslandsbanki lækkar vexti Útlánavextir Íslandsbanka munu lækka um allt að 0,25 prósentustig á föstudag. Innlánsvextir vextir haldast að mestu leyti óbreyttir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Edda Hermannsdóttir, forstöðumaður Markaðs- og samskiptasviðs, sendir fyrir hönd bankans. 2.12.2020 11:51
510 milljóna gjaldþrot Hópferðabifreiða Akureyrar Skiptum á þrotabúi Hópferðabifreiða Akureyrar er lokið en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í maí í fyrra. Lýstar kröfur í þrotabúið námu samanlagt 510 milljónum króna og fengust greiddar um 26 milljónir. 2.12.2020 10:07
Davíð í Unity keypti glæsihýsi Skúla Mogensen af Arion Davíð Helgason, einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Technologies, hefur keypt glæsihýsið við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi af Arion banka. Húsið, sem er eitt verðmætasta íbúðarhús landsins, var áður í eigu Skúla Mogensen, stofnanda og fyrrverandi forstjóra WOW air. 2.12.2020 08:16
Ósanngjarnt að fá aðeins að taka á móti 10 manns í 3000 fm húsnæði Kristín Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Garðheima, segir að það hafi verið erfitt að fá þær fréttir að tíu manna fjöldatakmarkanir verði áfram í gildi, þó þær hafi vissulega verið viðbúnar. Ósanngjarnt sé að mega ekki taka á móti fleirum en tíu í einu í þessu gríðarstóra húsnæði en að gert sé það besta úr hlutunum með hólfaskiptingum. 1.12.2020 20:01