Lífið

„Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög á­nægð með að hafa lagt af stað“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir ætlar sér á Bessastaði.
Katrín Jakobsdóttir ætlar sér á Bessastaði.

Þegar hún vill slökkva á heilanum horfir hún á Naked gun eða aðra eins vitleysu, hún getur orðið brjáluð í umferðinni og á eina eftirsjá á pólitíska ferlinum.

Sindri Sindrason fór í morgunkaffi til forsetaframbjóðandans Katrínar Jakobsdóttur sem sýndi hina hliðina á sér í Íslandi í dag í vikunni. Katrín býr í fallegri hundrað fermetra íbúð í Vesturbær Reykjavíkur þar sem hún býr með eiginmanni sínum og þremur strákum þeirra. En af hverju ákvað hún að fara í framboð.

„Þetta er ákvörðun sem kom til mín í þrepum. Fyrr í vetur var ég búin að ákveða að gefa ekki áfram kost á mér til þings, burt sé frá öllu öðru. Ég ætlaði að vera átta ár á þingi en búin að vera í sautján ár,“ segir Katrín og heldur áfram.

„Síðan fór fólk að hafa samband við mig á vormánuðum. Það voru mörg sem hvöttu mig árið 2016 en þá fannst mér það bara ekki koma til greina. Þá var ég með lítil börn og svona og mér fannst þetta þá mjög stór ákvörðun, sem þetta er. Ég hugsaði þetta vel um páskana og fór þá að hringja í fólk til að sannfæra mig að ég væri ekki alveg í ruglinu.“

Hún hefur gefið til kynna að hún myndi vilja reyna sitja sem forseti í tólf ár.

„Ég veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað í hana,“ segir Katrín.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×