Lífið

Nígeríusvindlarinn reyndist vera bróðir hans

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Líklega eru fáir eins góðir hrekkjalómar og bræðurnir Kolbeinn Karl og Magnús Már Kristinssynir.
Líklega eru fáir eins góðir hrekkjalómar og bræðurnir Kolbeinn Karl og Magnús Már Kristinssynir.

Kolbeinn Karl Kristinsson fékk tölvupóst klukkan tvö að nóttu og átti von á að fá Nígeríusvindlara inn á gafl til sín þar sem hann býr í Kaupmannahöfn hvað úr hverju að krefjast peninga. Í ljós kom að bróðir hans Magnús Már Kristinsson hafði tekist að blekkja hann svo vikum skipti þannig að Kolbeini var hætt að lítast á blikuna.

„Ég hef aldrei verið jafn hræddur á ævi minni. Ég var bara í algjöru geðrofi, algjörri geðshræringu. Eftir þetta hef ég ekki svarað einum einasta Nígeríusvindlara,“ segir Kolbeinn hlæjandi í samtali við Vísi. Kolbeinn lýsti hrekk bróður síns í langri færslu á samfélagsmiðlinum X sem áður hét Twitter.

Kolbeinn var í námi í Danmörku og segist oft hafa leikið sér að því að svara Nígeríusvindlurum, þeim sem senda tölvupóst og lofa gulli og grænum skógi gegn vægri greiðslu. Þetta hafi bróðir hans vitað og séð sér leik á borði en Kolbeinn segist sennilega hafa átt þetta skilið, enda sjálfur gríðarlega hrekkjóttur.

„Ég var alltaf að gera símaöt í honum og náði einu sinni að plata hann þegar hann var að vinna á verkfræðistofu þegar ég þóttist vera yfirmaður á annarri verkfræðistofu og endaði á að öskra á hann. Þá sagðist hann hafa verið með steininn í maganum.“

Kolbein segir Magnús ekki hafa sýnt mikla hrekkjalómatakta fyrr en nú. Hann hafi vitað sem var að Kolbeinn yrði auðveld bráð og myndi pottþétt svara hinum meinta Nígeríusvindlara.

Hætt að litast á blikuna

Kolbeinn rekur samskipti sín við bróður sinn í gegnum tölvupóst í færslunni á X. Þar segir hann að fyrsta óveðurskýið hafi hellst yfir hann þegar í ljós hafi komið að hinn meinti svindlari hafi leitað að honum á Facebook. Hann hafi látið sér það í léttu rúmi liggja og hvatt hann til að bæta sér við sem vini á Facebook.

„Svo addaði hann mér bara á Facebook og þá varð þetta aðeins of raunverulegt fyrir mig,“ segir Kolbeinn hlæjandi. Hann segir að einhvern veginn hafi persóna bróður hans orðið Facebook vinur hans þrátt fyrir að hann hafi ekki samþykkt vinabeiðnina en bróðir hans var með lykilorðið.

„Og ég var bara farinn að efast, hvort ég væri ekki alveg bara heill heilsu andlega, af því að ég fór svo og tók hann út og blokkaði hann en hann afblokkaðist og bættist aftur á vinalistann minn.“

Geðshræring um miðja nóttu

Þá næst var Kolbeini tilkynnt að kauði væri á leið til Kaupmannahafnar. Kolbeinn spurður hvort hann væri ekki jafnvel til í að hitta á hann á flugvellinum? Á þessum tímapunkti var Kolbeinn orðinn töluvert skelkaður og sagði hinum meinta svikahrappi að hann væri staddur á Íslandi. Hann sendi honum jafnframt skilaboð sem létu það líta út fyrir að tölvupósti hans hefði verið eytt.

„Á þessum tímapunkti kom upp algjör geðshræring þegar ljóst var að hann væri ekki bara að koma daginn eftir heldur vissi hann hvar ég byggi!“ segir Kolbeinn. Hann segir að þetta hafi verið um miðja nótt, um tvöleytið.

„Ég mun aldrei gleyma þessu, ég öskraði bara í geðshræringu á konuna mína, jafnvel þegar hún sagði mér að þetta væri Magnús bróðir þá trúði ég henni ekki, hann sagðist ætla að mæta kvöldið eftir og það skipti engu máli, ég vildi ekki hugsa þetta, ég vildi bara komast út, ég vissi ekkert hvað ég ætlaði að gera, þetta var algjört geðshræringarástand.“

Mun aldrei hrekkja neinn aftur

Kolbeinn segir að bróðir hans hafi ætlað að taka hrekkinn enn lengra. „Hann var búinn að plana það að taka þetta alla leið. Hann ætlaði að koma heim til mín íbúðina og banka og banka og banka og segja: YOU OWE ME MONEY, ég er ekki viss um að ég hefði lifað það af.“

Kolbeinn segist léttur í bragði ekki geta hugsað sér að hrekkja neinn aftur. „Ég vil ekki að nokkur maður eigi neitt sökótt við mig!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×