Umræðan

Eftir­spurnar­sjokk á hús­næðis­markaðnum

Halldór Kári Sigurðarson skrifar

Líkt og vænta mátti hefur íbúðaþörf Grindvíkinga sett mark sitt á húsnæðismarkaðinn undanfarið.

Lög um kaup ríkisins á íbúðum ná til 900 íbúðaeigenda í Grindavík en það gæti skapað kaupendur að tæplega þriðjungi allra íbúða sem eru til sölu á landinu. Líklegast má þó telja að Grindvíkingar leiti í eignir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en eins og sjá má hér að neðan duga allar þær íbúðir sem eru til sölu þar ekki fyrir Grindvíkinga.

Eftirspurnarþrýstingurinn sem fylgir þessum aðstæðum leiddi til þess að fjölbýli utan höfuðborgarsvæðisins hækkaði um 6,4% á milli mánaða í febrúar sem samsvarar 111% hækkun á ársgrunni! Þá er ekki útlit fyrir framboðshliðin geti með góðu móti brugðist við þessu eftirspurnarsjokki þar sem nýleg talning HMS bendir til að áfram dragi úr krafti íbúðauppbyggingar.

Loks eru það vextirnir, en kortaveltutölur benda til að hátt vaxtastig sé farið að draga úr umsvifum og í því samhengi gæti farið að koma tími á vaxtalækkanir þrátt fyrir þráláta verðbólgu.

Sennilegast reynir peningastefnunefnd að feta þröngan veg hóflegra vaxtalækkana á þessu ári en næsta ákvörðun nefndarinnar er 8. maí næstkomandi.

Undirritaður telur hins vegar ekki að hóflegar vaxtalækkanir muni verða megindrifkraftur húsnæðisverðshækkana á næstunni. Meirihluti húsnæðislána er aftur orðinn verðtryggður og stærstur hluti óverðtryggðra lána er á föstum vöxtum og því er virkni peningastefnunnar ekki með besta móti.

Fasteignakaupendur eru ekki að velja verðtryggð lán heldur eru þau eina færa leiðin til að standa undir núverandi fasteignaverði.

Á lánamarkaði eru það því frekar reglur um hámark greiðslubyrðar fasteignalána sem munu verða ráðandi.

Byggt á launavísitölum og gögnum Hagstofunnar um ráðstöfunartekjur má áætla að miðgildi ráðstöfunartekna íbúa landsins á fasteignakaupaaldri sé í kringum 540.000 krónur á mánuði.

Hér að neðan má því sjá svart á hvítu að fasteignakaupendur eru ekki að velja verðtryggð lán heldur eru þau eina færa leiðin til að standa undir núverandi fasteignaverði.

Þrátt fyrir að hugsa megi eftirspurn frá Grindvíkingum sem einhvers konar einskiptis eftirspurnarsjokk þá má ætla að áhrif þess muni vara í allt að tvö ár vegna þess hve seigfljótandi nýtt framboð er. Þá virðist áfram vera vilji til verðtryggðrar lántöku og meðan hans nýtur má vænta þó nokkurra húsnæðisverðshækkana vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í Grindavík.

Fyrir hönd Húsaskjóls, Halldór Kári Sigurðarson, hagfræðingur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Umræðan

Sjá meira


×