Pal­mer hetjan í ó­trú­legum sigri Chelsea á Manchester United

Aron Guðmundsson skrifar
Cole Palmer tryggði Chelsea dramatískan 4-3 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni með tveimur dramatískum mörkum í uppbótartíma venjulegs leiktíma í leik liðanna á Stamford Bridge í kvöld.
Cole Palmer tryggði Chelsea dramatískan 4-3 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni með tveimur dramatískum mörkum í uppbótartíma venjulegs leiktíma í leik liðanna á Stamford Bridge í kvöld. Vísir Getty

Cole Palmer tryggði Chelsea dramatískan 4-3 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni með tveimur dramatískum mörkum í uppbótartíma venjulegs leiktíma í leik liðanna á Stamford Bridge í kvöld.

Eftir tuttugu mínútna leik í kvöld var staðan orðin 2-0 heimamönnum í Chelsea í vil eftir mörk frá Conor Gallagher og svo Cole Palmer úr vítaspyrnu á 19.mínútu.

Útlitið mjög svo dökkt fyrir gestina frá Manchester en þeir náðu heldur betur að þappa sér saman og slá frá sér.

Alejandro Garnacho minnkaði muninn fyrir Manchester United með marki á 34.mínútu og aðeins fimm mínútum síðar var röðin komin að fyrirliða liðsins Bruno Fernandes.

Hann jafnaði metin fyrir Rauðu djöflana í stöðuna 2-2 og var það staðan þegar liðin gengu inn til búningsherbergja.

Á 67.mínútu kom Garnacho Manchester United yfir með þriðja marki liðsins og staðan allt í einu orðin 3-2 gestunum í vil.

Palmer fullkomnaði síðan þrennu sína og tryggði Chelsea dramatískan 4-3 sigur með þrumuskoti eftir hornspyrnu Chelsea. Ótrúleg dramatík á Stamford Bridge!

Ótrúlegur leikur! Magnaður sigur Chelsea staðreynd. Sigur sem sér til þess að liðið situr í 10.sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 43 stig. Manchester United er sem stendur í 6.sæti deildarinnar með 48 stig og mætir toppliði Liverpool á heimavelli í næstu umferð á sunnudaginn kemur. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira