Fótbolti

Mark­maðurinn tryggði liðinu stig með marki frá eigin vallar­helmingi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gabriel Kobylak skoraði ótrúlegt mark til að tryggja liði sínu stig í pólsku deildinni í gær.
Gabriel Kobylak skoraði ótrúlegt mark til að tryggja liði sínu stig í pólsku deildinni í gær. Vísir/Getty

Gabriel Kobylak, markvörður pólska liðsins Radomiak Radom, reyndist hetja liðsins er hann skoraði ótrúlegt mark frá eigin vallarhelmingi gegn Puszcza í pólsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.

Það að Puszcza og Radomiak Radom geri 1-1 jafntefli í pólsku deildinni í knattspyrnu ratar alla jafna ekki í íslenska fjölmiðla. Hins vegar fá úrslit gærdagsins að fljóta með, einfaldlega vegna þess að gestirnir tryggðu sér stig á ótrúlegan hátt.

Gestirnir í Radomiak Radom lentu í kröppum dansi snemma leiks þegar heimamenn tóku forystuna strax á fjórðu mínútu leiksins.

Ekki batnaði útlitið á 63. mínútu þegar Radomiak Radom missti mann af velli með beint rautt spjald og gestirnir þurftu því að leika seinusta hálftíma leiksins manni færri. 

Þrátt fyrir liðsmuninn tókst gestunum að finna jöfnunarmark aðeins þremur mínútum eftir að liðið missti mann af velli. Markið kom heldur betur úr óvæntri átt, en það var markvörðurinn Gabriel Kobylak sem jafnaði metin með skoti nánast frá eigin vítateig.

Eins og gefur að skilja fögnuðu liðsfélagar Kobylak markinu vel og innilega og varð niðurstaðan að lokum 1-1 jafntefli, en markið má sjá hér fyrir neðan.

 

Radomiak Radom situr nú í 11. sæti pólsku deildarinnar með 32 stig eftir 26 leiki, sjö stigum meira en Puszcza sem er einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×