Handbolti

Á förum frá Zwickau

Valur Páll Eiríksson skrifar
Díana Dögg í landsleik gegn Frökkum fyrr í vetur
Díana Dögg í landsleik gegn Frökkum fyrr í vetur Vísir/EPA

Landsliðskonan Díana Dögg Magnúsdóttir er á förum frá þýska handboltaliðinu Zwickau. Félagið greinir frá þessu.

Zwickau gaf út yfirlýsingu í gærkvöld þar sem greint er frá því að Díana Dögg hyggist ekki endurnýja samning sinn við liðið en sá rennur út eftir yfirstandandi leiktíð.

Ekki fylgir sögunni hvort Díana hafi fundið sér nýtt lið eða hvert hún hyggist halda næst. Hún hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin ár.

Díana er uppalin í Vestmannaeyjum, hjá ÍBV, og er hluti af landsliðshópi Íslands sem á fyrir höndum leiki gegn Lúxemborg og Færeyjum. Sigrar í leikjunum tveimur skila Íslandi á EM í desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×