Innlent

Ekki for­svaran­legt að opna Bláa lónið að mati lög­­reglu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Enn er stöðugt hraunrennsli úr eldgosinu en virknin hefur minnkað síðustu daga.
Enn er stöðugt hraunrennsli úr eldgosinu en virknin hefur minnkað síðustu daga. Vísir/Vilhelm

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu. 

Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá embættinu og að það fyrirkomulag sem sé í gildi verði næst endurskoðað 2. apríl. Þar kemur einnig fram að enn stafi ógn af hraunrennsli og gasmengun í Grindavík og inn í Svartsengi við núverandi aðstæður. Þá er einnig hætta á að loftmengun geti ógnað heilsu manna inn á merktu hættusvæði og að áfram sé aukin hætta vegna gasmengunar.

„Við breytilega vindátt getur vart talist forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa Lóninu á meðan eldgos er enn í gangi og á það jafnframt við um aðra starfsemi inn á merktu hættusvæði. Fylgst er vel með loftgæðum á svæðinu m.a. í góðu samstarfi við atvinnurekendur,“ segir í tilkynningu lögreglunnar en há gildi af SO2 (brennisteinsdíoxíð) hafa mælst á svæðinu síðustu daga. 

Fyrirtæki og stofnanir á suðvesturhorni landsins eru beðin að huga vel að þróun loftgæða vegna mögulegrar hættu á gasmengun.

Búið er að girða af ákveðin svæði í Grindavík þar sem hætta er talin veruleg. Vísir/Arnar

Þá biðlar lögreglustjóri til íbúa Grindavíkur og annarra sem eiga hagsmuna að gæta inn á merktu hættusvæði að dvelja ekki þar. Aðstæður geti verið lífshættulegar og er þeim, sem eiga erindi til Grindavíkur, bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vef Umhverfisstofnunar.

Mikilvægt er að hafa neðangreint í huga:

• Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri. Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum.

• Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirvara. Hætta er á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Hætta er talin mikil á gasmengun og hraunflæði.

• Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.

• Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.

• Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja bæjarins, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa. Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.


Tengdar fréttir

Sprungufylling á borði bæjarstjórnar en eðlilegt að hún óski hjálpar

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir ljóst að bæjarstjórn Grindavíkur þurfi að fara með umsjón sprungufyllinga í bænum. Það sé þó ekki óeðlilegt að sveitarfélagið óski eftir stuðningi til þess. Ótímabært sé þó að lofa einhverjum peningafjárhæðum í verkið.

Vilja að ríkið fjármagni sprungufyllingar fyrir hundruð milljóna

Bæjaryfirvöld í Grindavík kalla eftir því að ríkið komi að fjármögnun sprungufyllinga og viðgerða í  bænum. Verkefnið hleypur á hundruðum milljóna. Níu svæði hafa verið girt af í bænum eftir að niðurstöður úr jarðvegsrannsókn sýndu fram á holrými og hættur sem leynast neðanjarðar.

Jörðin í Grindavík gaf sig undan vinnuvél

Vinnutæki af gerð sem kölluð er búkolla í daglegu máli hrundi að hluta til ofan í sprungu í Grindavík í dag. Verið var að álagsprófa nokkrar götur sem lokaðar voru almenningi. Vitað var af nokkrum sprungum og holrýmum og þungum ökutækjum var ekið um svæðið til að kanna burðargetu og öryggi gatnanna.

Dregið úr gosinu en land rís enn

Svo virðist sem dregið hafi úr eldgosinu við Sundhnúksgíga síðasta sólarhringinn. Virkni í gígunum er minni og mögulega slökknað í minnstu gígunum. GPS-mælingar síðustu daga benda þó til þess að landris sé í gangi í Svartsengi, en mun hægara en áður. Það bendir til þess að enn safnist kvika í söfnunarsvæðið undir Svartsengi þótt eldgos sé í gangi.

Níu svæði í Grindavík girt af

Búið er að girða af níu svæði í Grindavík sem talin eru hættuleg og vísbendingar eru um holrými. Það var gert um helgina í kjölfar niðurstaðna jarðkönnunnarverkefnis almannavarna. Verkefnastjóri segir vísbendingar um að fleiri svæði í bænum séu verr farin.

Götur í Grindavík girtar af og enn deilt um búvörulögin

Í hádegisfréttum verður rætt við verkefnastjóra jarðkönnunarverkefnis Almannavarna en níu svæði í Grindavík hafa verið girt af. Aðeins hefur dregið úr virkni gossins á Reykjanesi en það er þó enn í fullum gangi og tveir stærstu gígarnir eru enn vel virkir. Einnig verður rætt við stjórnsýslufræðing sem gerir alvarlegar athugasemdir við hina þinglegu meðferð á nýsamþykktum búvörulögum sem hart hefur verið deilt um. Í íþróttapakka dagsins verður síðan hitað upp fyrir stórleikinn á morgun þegar Íslendingar mæta Úkraínu í Póllandi til að keppa um laust sæti á EM í fótbolta næsta sumar.<div><iframe width="752" height="423" src=https://www.visir.is/player/beint/visir frameborder="0" scrolling="no" seamless="seamless" allowfullscreen></iframe> </div>Embed: Hádegisfréttir

„Gasið hefur ekkert risið“

Hætta er á gasmengun við Hafnir og í Grindavík í dag að sögn veðurfræðings hjá veðurstofunni, en há gildi brennisteinsdíoxíðs mældust þar í nótt og í morgun. Hraun lekur ennþá ofan í Melholsnámu og áfram er unnið að hækkun varnargarðanna.

Íbúar í Höfnum loki gluggum vegna mengunar

Á mælum Umhverfisstofununar mælist nú mikil mengun í Höfnum. Vegna þess mæla Almannavarnir með að íbúar á svæðinu loki gluggum og slökkvi á loftræstingu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×