Handbolti

Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni

Siggeir Ævarsson skrifar
Sunna Jónsdóttir skoraði átta mörk í dag
Sunna Jónsdóttir skoraði átta mörk í dag Vísir/Diego

Lokaumferð Olís-deildar kvenna fór fram í dag og nú er orðið endanlega ljóst hvaða lið mætast í umspili um sæti í undanúrslitum.

Efstu tvö liðin sleppa við umspil en Valskonur hafa haft töluverða yfirburði í vetur og aðeins tapað einum leik. Þær tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í lok febrúar og þurfa eðli málsins samkvæmt ekki að leika í umspilinu.

Fram sleppur einnig við umspilið en liðið tryggði sér annað sæti deildarinnar með sigri á KA/Þór í dag sem féll þá endanlega úr deildinni en liðið endaði í neðsta sæti. Nánar má lesa um leikinn hér að neðan.

Liðið fjögur sem fara í umspilið eru því Haukar, ÍBV, ÍR og Stjarnan.

Úrslit dagsins

Stjarnan - ÍBV 23-23

Haukar - ÍR 21-21

Afturelding - Valur 20-33

Fram - KA/Þór 26-23




Fleiri fréttir

Sjá meira


×