Handbolti

FH sótti ekki gull í greipar Eyja­manna og topp­bar­áttan lifir enn góðu lífi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Elmar Erlingsson er stemningsmaður mikill.
Elmar Erlingsson er stemningsmaður mikill. Vísir/Hulda Margrét

Alls fóru fjórir leikir fram í Olís deild karla í handbolta í kvöld. ÍBV lagði topplið FH í Vestmannaeyjum, Fram vann HK örugglega, Stjarnan lagði Selfoss og Afturelding sótti sigur á Seltjarnarnesi.

Í Vestmannaeyjum var topplið FH í heimsókn. Fór það svo að Eyjamenn unnu fjögurra marka sigur, lokatölur 32-28.

Elmar Erlingsson fór hamförum í liði ÍBV, skoraði hann 9 mörk. Þar á eftir kom Daniel Esteves Vieira með 7 mörk úr aðeins 9 skotum. Petar Jokanovic varði 16 skot í markinu og var með 50 prósent hlutfallsmarkvörslu.

Hjá FH var Einar Bragi Aðalsteinsson markahæstur með 5 mörk og Daníel Freyr Andrésson varði 15 skot í markinu.

FH er sem fyrr á toppnum með 33 stig, þremur á undan Val þegar öll lið hafa leikið 19 af 22 leikjum. ÍBV er í 4. sæti með 24 stig.

HK tók á móti Fram í leik sem gestirnir unnu með níu marka mun, lokatölur 26-35. Stjarnan vann Selfoss í heldur rólegum leik, lokatölur í Garðabæ 24-19. Á Seltjarnarnesi var Afturelding í heimsókn. Þar unnu gestirnir tveggja marka sigur, lokatölur 27-29.

Stöðuna í deildinni má finna á vefsíðu HSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×