Fótbolti

Sheffield kastaði frá sér sigrinum og Úlfarnir stöðvuðu sigur­göngu Fulham

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Enes Unal bjargaði stigi fyrir Bournemouth í dag.
Enes Unal bjargaði stigi fyrir Bournemouth í dag. Warren Little/Getty Images

Enes Unal reyndist hetja Bournemouth er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Á sama tíma vann Wolves 2-0 sigur gegn Fulham og Crystal Palace og Luton gerðu 1-1 jafntefli.

Gengi Sheffield United hefur verið afleitt á tímabilinu og liðið sat í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 13 stig eftir 27 leiki.

Heimamenn í Bournemouth fengu gullið tækifæri til að taka forystuna snemma þegar Tom Davies braut af sér innan vítateigs eftir tæplega 15 mínútna leik. Dominic Solanke fór á punktinn fyrir Bournemouth, en hann þrumaði boltanum yfir slána.

Gestirnir nýttu sér vítaklúðrið og Gustavo Hamer kom liðinu yfir á 27. mínútu. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins og Sheffield United fór því með 1-0 forystu inn í hálfleikshléið.

Jack Robinson bætti svo öðru marki gestanna við á 65. mínútu með góðu skoti áður en Dominic Solanke virtist hafa minnkað muninn tveimur mínútum síðar, en markið dæmt af eftir skoðun myndbandsdómara.

Heimamönnum tókst þó að minnka muninn þegar Dango Ouattara skoraði með skalla á 74. mínútu áður en Enes Unal tryggði Bournemouth dramatískt stig er hann jafnaði metin á annarri mínútu uppbótartíma.

Niðurstaðan því 2-2 jafntefli og Sheffield United situr nú situr í 19. sæti deildarinnar með 14 stig eftir 28 leiki, tíu stigum frá öruggu sæti. Bournemouth situr hins vegar í 13. sæti með 32 stig.

Þá batt Wolves enda á tveggja leikja sigurgöngu Fulham á sama tíma þar sem Rayan Ait-Nouri kom Úlfunum yfir á 52. mínútu áður en sjálfsmark Tom Cairney kom liðinu í 2-0. Alex Iwobi minnkaði muninn fyrir Fulham á níundu mínútu uppbótartíma, en lokatölur urðu 2-1, Wolves í vil.

Að lokum bjargaði Cauley Woodrow stigi fyrir Luton er hann jafnaði metin í 1-1 á sjöttu mínútu uppbótartíma eftir að Jean-Philippe Mateta hafði komið heimamönnum yfir með marki snemma leiks. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×