Veður

Reikna með að frostið bíti í kinnar í norðannæðingi

Atli Ísleifsson skrifar
Unnið hefur verið að því að snyrta tré víða um bæ síðustu daga.
Unnið hefur verið að því að snyrta tré víða um bæ síðustu daga. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir að það muni bæta í vind á landinu þegar gangi í norðan átta til fimmtán metra á sekúndu og hvassara í vindstrengjum suðaustantil síðdegis.

Er reiknað með éljum á Norður- og Austurlandi og allra syðst á landinu muni snjóa fram að hádegi úr snjókomubakka sem muni halda sig við ströndina en fjarlægist síðan.

„Annars staðar er þurr og bjartur dagur í vændum, til dæmis á Faxaflóasvæðinu. Það er kalt hjá okkur og viðbúið að frostið bíti í kinnar í norðan næðingnum í dag.

Á morgun sest hæð yfir landið og það lægir víðast hvar með léttskýjuðu veðri eða heiðríkju, en áfram verður kalt. Það er því útlit fyrir sólríkan og fallegan vetrardag á landinu á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða léttskýjað, en norðan 8-13 og lítilsháttar él við austurströndina fram eftir degi. Frost 2 til 12 stig, mest í innsveitum fyrir norðan.

Á sunnudag: Austan 3-8 á vestanverðu landinu, bjartviðri og minnkandi frost. Gengur í austan 8-13 austantil með slyddu, en síðar rigningu og hita yfir frostmarki.

Á mánudag: Austan 5-13 með rigningu eða slyddu, en snjókomu inn til landsins. Þurrt að kalla vestanlands. Hiti 0 til 5 stig.

Á þriðjudag: Austan og suðaustan 5-13 og rigning eða slydda með köflum, en þurrt á norðanverðu landinu. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag: Stíf suðaustanátt og dálítil væta um landið suðaustanvert, en þurrt að kalla norðan- og vestanlands. Hiti 3 til 8 stig.

Á fimmtudag: Suðaustanátt og rigning, en úrkomulítið norðantil á landinu. Hiti svipaður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×