Samstarf

Glæ­nýr og endur­hannaður Ford Transit Cu­s­tom frum­sýndur

Ford á Íslandi
Ford á Íslandi frumsýnir þessa dagana glænýjan og virkilega vel endurhannaðan Ford Transit Custom. „Breytingarnar á bílnum eru einstaklega vel heppnaðar bæði að innan og utan, auk þess sem bíllinn er nú fáanlegur fjórhjóladrifinn,“ segir Gísli Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri sölusviðs Ford, Volvo og Polestar.
Ford á Íslandi frumsýnir þessa dagana glænýjan og virkilega vel endurhannaðan Ford Transit Custom. „Breytingarnar á bílnum eru einstaklega vel heppnaðar bæði að innan og utan, auk þess sem bíllinn er nú fáanlegur fjórhjóladrifinn,“ segir Gísli Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri sölusviðs Ford, Volvo og Polestar.

Í dag, fimmtudaginn 22. febrúar, frumsýnir Ford á Íslandi með stolti glænýjan og virkilega vel endurhannaðan Ford Transit Custom.

„Breytingarnar á bílnum eru einstaklega vel heppnaðar bæði að innan og utan, auk þess sem bíllinn er nú fáanlegur fjórhjóladrifinn,“ segir Gísli Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri sölusviðs Ford, Volvo og Polestar. „Í raun má segja að sendibíllinn sé algjör bylting fyrir fólk sem þarf að nota þessa stærð af sendibílum enda oft kallaður skrifstofa á hjólum.“

Nýi Ford Transit Custom kemur í nýju og glæsilegt útliti.

Bíllinn er ekki bara með nýtt og glæsilegt útlit heldur hefur Ford lagt ríka áherslu á að gera allt vinnuumhverfið sem þægilegast við notendur. „Nýi Ford Transit Custom býr meðal annars yfir 13“ snertiskjá sem ekki hefur áður sést í þessum bílum, stýri sem er hægt að breyta í borð til að vinna við, 5G nettengingu sem þýðir að auðvelt er að vinna t.d. skýrslur í bílnum og margt fleira og „Pro Power Onboard“ tengil fyrir rafmagnsverkfæri.

Einnig býr bíllinn yfir sérstakri olíumiðstöð sem þýðir að bíllinn bíður upphitaður fyrir eigandann þegar honum hentar. „Maður getur ekki hugsað sér annað eftir að hafa kynnst þeim lúxus,“ segir Gísli.

Við hönnum bílsins lagði Ford ríka áherslu á að gera allt vinnuumhverfið sem þægilegast við notendur.

Loksins er hægt að kaupa fjórhjóladrifinn Ford Transit Custom en Gísli segir þau hafa beðið eftir slíkum bíl í um 20 ár. „Nýi bíllinn kemur í tveimur lengdum, L1 og L2, og er 40 cm lengdarmunur á týpunum. Hægt er að velja milli sjálfskipts og beinskipts bíls en fjórhjóladrifni bíllinn er alltaf sjálfskiptur. Staðalbúnaðurinn sérstaklega ríkulegur bæði er varðar þægindi og öryggi en síðan er hægt að velja undirgerðir sem eru Trend og Limited útfærslurnar.“

Ford Custom hefur lengi verið mest seldi sendibíllinn í Evrópu enda hentar hann mörgum ólíkum starfsstéttum.

Nýlega kaus dómnefnd skipuð 25 atvinnubílablaðamönnum bílinn sem sigurvegara IVOTY 2024 (International Van of the Year Award) og átti hann titilinn sannarlega skilið að sögn Gísla. „Þetta eru virtustu verðlaunin í þessum bransa í Evrópu og skipta því mjög miklu máli. Þau sýna líka enn frekar hversu öflugur bíll þetta en Ford Custom hefur lengi verið mest seldi sendibíllinn í Evrópu.“

Nýi Ford Transit Custom býr meðal annars yfir 5G nettengingu sem þýðir að auðvelt er að vinna t.d. skýrslur í bílnum og margt fleira.

Verið velkomin til Ford á Íslandi á Bíldshöfða 6 í Reykjavík, dagana 22. febrúar - 2. mars þar sem hægt er að skoða og prufukeyra nýja Ford Transit Custom. Það er alltaf heitt kaffi á könnunni og ljúffengt súkkulaði í skálunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×