Formúla 1

Markaðs­virði Ferrari hækkað um tæpa þúsund milljarða eftir fréttirnar um Hamilton

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Fréttirnar af mögulegum skiptum Lewis Hamilton til Ferrari hafa ýmiskonar áhrif.
Fréttirnar af mögulegum skiptum Lewis Hamilton til Ferrari hafa ýmiskonar áhrif. Rudy Carezzevoli/Getty Images

Markaðsvirði Ferrari rauk upp úr öllu valdi eftir að fréttir bárust af því að Lewis Hamilton væri að öllum líkindum á leið til liðsins frá Mercedes.

Greint var frá því á vef Motorsport.com fyrr í dag að útlit sé fyrir að Hamilton verði annar af ökuþórum Ferrari frá og með næsta ári. Ekki sé þó ljóst hvort að samningar hafi þegar verið undirritaðir en að það gæti orðið frágengið fyrir lok þessarar viku.

Eftir að fréttirnar bárust rauk markaðsvirði Ferrari upp úr öllu valdi og gengi bréfa í Ferrari hækkaði um meira en tíu prósent. Gengi bréfanna er því orðið hærra en nokkru sinni fyrr í kauphöllinni í New York.

Markaðsvirði Ferrari hækkaði um um 6,7 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar um 919,6 milljörðum íslenskra króna. Þegar markaðurinn lokaði í gærkvöldi kostaði einn hlutur í Ferrari rétt tæpa 367 dollara, en kostar nú 384 dollara, og búist er við því að verðið gæti enn hækkað áður en dagurinn er úti.

Þá hefur markaðsvirði Ferrari hækkað úr 62,4 milljörðum dollara upp í 69,1 milljarða dollara frá því í gær.

Eins og áður segir hafa fréttirnar um brotthvarf sjöfalda heimsmeistarans frá Mercedes ekki verið staðfestar, en á vef Motorsport.com kemur fram að mögulega verði greint frá skiptunum síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×