Handbolti

EM í dag: Mót­mæli, fyndnir hattar og grýttir með snjó­boltum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það voru margir svona fyndnir hattar í Köln um helgina.
Það voru margir svona fyndnir hattar í Köln um helgina.

Sunnudagurinn var sérstakur í Köln þar sem mótmæli voru á öðru hverju horni. Það fannst okkar mönnum í EM í dag sérstakt.

Það var ekki bara það heldur er mikið af fólki í furðulegum fötum og með fyndna hatta út um allt. Það er endalaust karnival í Köln.

Henry og Sindri ræða lífið í Köln og að sjálfsögðu ræddu þeir strákana okkar. Það er allt undir hjá þeim gegn Króatíu. Tap og ÓL-draumurinn er dáinn.

Sjá má nýjasta þáttinn hér að neðan.

Klippa: EM í dag - ellefti þáttur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×