Lífið

Theo­dóra Mjöll fann ástina og er ó­létt

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Theodóra Mjöll hefur gefið út þrjár bækur um hár og aðrar fimm í samstarfi við Disney-samsteypuna.
Theodóra Mjöll hefur gefið út þrjár bækur um hár og aðrar fimm í samstarfi við Disney-samsteypuna. Skjáskot

Theodóra Mjöll Skúladóttir, hárgreiðslukona og vöruhönnuður, hefur fundið ástina í örmum Þórs Steinars Ólafs knattspyrnuþjálfara. Parið á auk þess von á sínu fyrsta barni saman á sumarmánuðum.

„Þakklát fyrir ævintýri ársins og bíðum spennt eftir óvæntum sumarglaðningi,“ skrifaði Theodóra og deildi  myndum af parinu á Instagram á áramótunum. Á seinni myndinni má sjá glitta í fína óléttukúlu.

Fyrir á Theodóra einn dreng.

Theodóra hefur starfað sem hárgreiðslukona í rúma tvo áratugi. Árið 2021 stofnaði hún svo sitt eigið hárvörumerki sem ber heitið THEA og kom innblásturinn frá ferli hennar í hárgreiðslunni.

Samhliða hárgreiðslustarfinu hefur hún gefið út þrjár bækur um hár og hárumhirðu, og aðrar fimm í samstarfi við Disney-samsteypuna.


Tengdar fréttir

„Í áskorunum er tækifæri til að þróast“

„Hugmyndin um að þróa mitt eigið hárvörumerki er búin að vera í höfðinu á mér í mörg ár en ég byrjaði ekki að vinna í henni að alvöru fyrr en 2019,“ segir vöruhönnuðurinn og hárgreiðslukonan Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack í samtali við Vísi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×