Krefjast þess að Thomas komi ekki að máli Trumps Samúel Karl Ólason skrifar 18. desember 2023 16:50 Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og Clarence Thomas, hæstaréttardómari EPA Sífellt fleiri þingmenn Demókrataflokksins krefjast þess að hæstaréttardómarinn Clarence Thomas komi ekki að úrskurði Hæstaréttar varðandi mögulega friðhelgi Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Er það vegna þess að eiginkona Thomas tók þátt í tilraunum Trumps til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Hópur þingmanna sendi Thomas nýverið bréf þar, samkvæmt frétt Washington Post, sem þeir kölluðu eftir því að hann segði sig vanhæfan til að fjalla um málefni Trumps. Er það vegna þess að Virgina Thomas, eiginkona dómarans, sendi embættismönnum í Hvíta húsinu og þingmönnum Repúblikanaflokksins ítrekað skilaboð og hvatti þá til að snúa úrslitum forsetakosninganna. Hún tók einnig þátt í fundi Trumps í Washington DC sem leiddi til árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar 2021, þar sem stuðningsmenn forsetans ruddust inn í þinghúsið til að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita kosninganna. Þá sagði Virgina Thomas þingmönnum sem rannsökuðu árásina á þinghúsið í fyrra að hún væri enn sannfærð um að kosningunum hefði verið stolið af Trump með umfangsmiklu kosningasvindli. Í bréfinu segja þingmennirnir að þetta veki upp spurningar um það hvort Thomas geti virst óhlutdrægur í málinu. Þeir segja að ef Thomas vilji sýna bandarísku þjóðinni að nýjar siðareglur hæstaréttar séu meira virði en virði pappírsins sem þær eru skrifaðar á, verði hann að segja sig frá málinu. Sjá einnig: Hæstiréttur Bandaríkjanna setur sér siðareglur í fyrsta sinn Umræddar siðareglur eru að miklu leyti til komnar vegna uppljóstrana um að Clarence Thomas hefur í gegnum árin tekið við gjöfum frá bandarískum auðjöfrum. You ve probably heard Clarence Thomas in the news lately for all the wrong reasons.Whether it s his undisclosed lavish gifts or his wife s involvement in trying to overturn the election, he must recuse himself in Trump s immunity case. Read our letter with @RepHankJohnson pic.twitter.com/SDfT5p9BJE— Congresswoman Jasmine Crockett (@RepJasmine) December 18, 2023 Vill að Hæstiréttur taki málið í flýtimeðferð Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytisins, leitaði nýverið til Hæstaréttar Bandaríkjanna og bað dómara um að taka fljótt til skoðunar hvort Trump nyti enn þeirrar friðhelgi frá lögsóknum sem fylgir forsetaembættinu. Trump stendur frammi fyrir fjórum ákærum vegna tilrauna hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna og lögmenn hans héldu því nýverið fram að hann nyti enn friðhelgi sem fyrrverandi forseti. Tanya S. Chutkan, einn af dómurunum sem eru yfir málunum gegn Trump, úrskurðaði gegn forsetanum fyrrverandi og sagði að það hafa setið í embætti forseta veitti manni ekki lífslangt leyfi til að brjóta af sér. Hún sagði fyrrverandi forseta ekki njóta friðhelgi gegn rannsóknum, ákærum eða lögsóknum og að hægt væri að refsa þeim fyrir möguleg brot sem þeir frömdu í fangelsi. Lögmenn Trumps áfrýjuðu því en Trump hefur lagt mikið kapp á að reyna að draga hælana og tefja málareksturinn gegn sér, þar til eftir forsetakosningarnar í nóvember á næsta ári. Jack Smith, sem heldur utan um tvær ákærur gegn Trump, krafðist þess í síðustu viku að málið færi ekki hefðbundna áfrýjunarleið í gegnum dómskerfið heldur tæki Hæstiréttur Bandaríkjanna málið fyrir sem fyrst. Það var mánudaginn 11. desember en síðar þann sama dag gáfu Hæstaréttardómarar lögmönnum Trumps frest til 20. desember til að bregðast við kröfum Smith og sögðust dómararnir ætla að svara Smith eins fljótt og auðið væri um hvort málið yrði tekið þá leið sem hann vill. Donald Trump hefur verið ákærður fjórum sinnum á undanförnum mánuðum. Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hefur ákært Trump í tveimur málum. Annað þeirra snýr að viðleitni hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna í Bandaríkjunum árið 2020 á landsvísu. Réttarhöldin eiga að hefjast 4. mars. Hitt snýr að opinberum gögnum og leynilegum skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu þegar hann flutti til Flórída og neitaði að afhenta. Réttarhöldin eiga að hefjast í maí. Hann hefur einnig verið ákærður í New York fyrir brot á lögum um kosningar vegna þagnargreiðslu til klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels. Réttarhöldin eiga að hefjast 25. mars. Trump hefur þar að auki verið ákærður í Georgíu og fyrir að reyna að snúa úrslitum kosninganna þar. Ekki er búið að ákveða hvenær réttarhöldin í Georgíu eiga að hefjast en búið er að ákveða að sýnt verði frá þeim í beinni útsendingu. Í kröfunni skrifuðu Smith og saksóknarar hans að það væri gífurlega mikilvægt að svara spurningunni um friðhelgi Trumps eins fljótt og hægt væri, svo hægt væri að hefja réttarhöldin gegn honum, verði kröfu hans um friðhelgi hafnað. Þeir sögðu málið ekki geta beðið til næsta dómatímabils Hæstaréttar. Hæstiréttur kemur næst saman þann 5. janúar, samkvæmt dagskrá. AP fréttaveitan segir mögulegt að það verði fyrr en það sé óljóst. Þetta yrði í fyrsta sinn sem Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðar um það hvort fyrrverandi forsetar njóti sömu friðhelgi og starfsreglur dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna segja að sitjandi forsetar njóti gegn ákærum. Sex af níu hæstaréttardómurum Bandaríkjanna voru skipaðir af forsetum úr Repúblikanaflokknum og þrír þeirra voru skipaðir í embætti af Trump. Thomas er ekki einn þeirra en hann var skipaður af George Bush árið 1991. Bandaríkin Donald Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna Árás á bandaríska þinghúsið Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Joe Biden Tengdar fréttir Greiði mæðgunum ríflega tuttugu milljarða Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump og borgarstjóri New York borgar, hefur verið dæmdur til að greiða mæðgum, sem hann rægði með ásökunum um kosningasvindl, 148 milljónir dala. Það gerir ríflega tuttugu milljarða króna. 16. desember 2023 08:45 Leynileg Rússamappa hvarf á síðustu dögum Trumps í Hvíta húsinu Mappa sem innihélt leynileg skjöl og gögn um afskipti Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016, hvarf á síðustu dögum forsetatíðar Donalds Trump, og hefur ekki fundist enn það dag í dag. Forsvarsmenn leyniþjónusta Bandaríkjanna óttast að sum af best varðveittu leyndarmálum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra geti verið opinberuð. 15. desember 2023 17:05 Segist aðeins myndu verða einræðisherra fyrsta daginn í Hvíta húsinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, neitaði því ekki á kosningafundi í gær að hann myndi nota vald sitt til að ná fram hefndum kæmist hann aftur í Hvíta húsið. 6. desember 2023 06:41 Sótti fjáröflunarráðstefnur með auðjöfrum Clarence Thomas, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, tók að minnsta kosti tvisvar sinnum þátt í fjáröflunarráðstefnum auðugra bandarískra íhaldsmanna. Ráðstefnurnar voru haldnar af Koch-bræðrunum en Thomas hefur aldrei sagt frá þessu á hagsmunaskrám, eins og öðrum umdeildum lúxusferðum og viðskiptaflækjum sem hann hefur átt í gegnum árin. 22. september 2023 16:21 Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Fleiri fréttir „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Sjá meira
Hópur þingmanna sendi Thomas nýverið bréf þar, samkvæmt frétt Washington Post, sem þeir kölluðu eftir því að hann segði sig vanhæfan til að fjalla um málefni Trumps. Er það vegna þess að Virgina Thomas, eiginkona dómarans, sendi embættismönnum í Hvíta húsinu og þingmönnum Repúblikanaflokksins ítrekað skilaboð og hvatti þá til að snúa úrslitum forsetakosninganna. Hún tók einnig þátt í fundi Trumps í Washington DC sem leiddi til árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar 2021, þar sem stuðningsmenn forsetans ruddust inn í þinghúsið til að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita kosninganna. Þá sagði Virgina Thomas þingmönnum sem rannsökuðu árásina á þinghúsið í fyrra að hún væri enn sannfærð um að kosningunum hefði verið stolið af Trump með umfangsmiklu kosningasvindli. Í bréfinu segja þingmennirnir að þetta veki upp spurningar um það hvort Thomas geti virst óhlutdrægur í málinu. Þeir segja að ef Thomas vilji sýna bandarísku þjóðinni að nýjar siðareglur hæstaréttar séu meira virði en virði pappírsins sem þær eru skrifaðar á, verði hann að segja sig frá málinu. Sjá einnig: Hæstiréttur Bandaríkjanna setur sér siðareglur í fyrsta sinn Umræddar siðareglur eru að miklu leyti til komnar vegna uppljóstrana um að Clarence Thomas hefur í gegnum árin tekið við gjöfum frá bandarískum auðjöfrum. You ve probably heard Clarence Thomas in the news lately for all the wrong reasons.Whether it s his undisclosed lavish gifts or his wife s involvement in trying to overturn the election, he must recuse himself in Trump s immunity case. Read our letter with @RepHankJohnson pic.twitter.com/SDfT5p9BJE— Congresswoman Jasmine Crockett (@RepJasmine) December 18, 2023 Vill að Hæstiréttur taki málið í flýtimeðferð Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytisins, leitaði nýverið til Hæstaréttar Bandaríkjanna og bað dómara um að taka fljótt til skoðunar hvort Trump nyti enn þeirrar friðhelgi frá lögsóknum sem fylgir forsetaembættinu. Trump stendur frammi fyrir fjórum ákærum vegna tilrauna hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna og lögmenn hans héldu því nýverið fram að hann nyti enn friðhelgi sem fyrrverandi forseti. Tanya S. Chutkan, einn af dómurunum sem eru yfir málunum gegn Trump, úrskurðaði gegn forsetanum fyrrverandi og sagði að það hafa setið í embætti forseta veitti manni ekki lífslangt leyfi til að brjóta af sér. Hún sagði fyrrverandi forseta ekki njóta friðhelgi gegn rannsóknum, ákærum eða lögsóknum og að hægt væri að refsa þeim fyrir möguleg brot sem þeir frömdu í fangelsi. Lögmenn Trumps áfrýjuðu því en Trump hefur lagt mikið kapp á að reyna að draga hælana og tefja málareksturinn gegn sér, þar til eftir forsetakosningarnar í nóvember á næsta ári. Jack Smith, sem heldur utan um tvær ákærur gegn Trump, krafðist þess í síðustu viku að málið færi ekki hefðbundna áfrýjunarleið í gegnum dómskerfið heldur tæki Hæstiréttur Bandaríkjanna málið fyrir sem fyrst. Það var mánudaginn 11. desember en síðar þann sama dag gáfu Hæstaréttardómarar lögmönnum Trumps frest til 20. desember til að bregðast við kröfum Smith og sögðust dómararnir ætla að svara Smith eins fljótt og auðið væri um hvort málið yrði tekið þá leið sem hann vill. Donald Trump hefur verið ákærður fjórum sinnum á undanförnum mánuðum. Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hefur ákært Trump í tveimur málum. Annað þeirra snýr að viðleitni hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna í Bandaríkjunum árið 2020 á landsvísu. Réttarhöldin eiga að hefjast 4. mars. Hitt snýr að opinberum gögnum og leynilegum skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu þegar hann flutti til Flórída og neitaði að afhenta. Réttarhöldin eiga að hefjast í maí. Hann hefur einnig verið ákærður í New York fyrir brot á lögum um kosningar vegna þagnargreiðslu til klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels. Réttarhöldin eiga að hefjast 25. mars. Trump hefur þar að auki verið ákærður í Georgíu og fyrir að reyna að snúa úrslitum kosninganna þar. Ekki er búið að ákveða hvenær réttarhöldin í Georgíu eiga að hefjast en búið er að ákveða að sýnt verði frá þeim í beinni útsendingu. Í kröfunni skrifuðu Smith og saksóknarar hans að það væri gífurlega mikilvægt að svara spurningunni um friðhelgi Trumps eins fljótt og hægt væri, svo hægt væri að hefja réttarhöldin gegn honum, verði kröfu hans um friðhelgi hafnað. Þeir sögðu málið ekki geta beðið til næsta dómatímabils Hæstaréttar. Hæstiréttur kemur næst saman þann 5. janúar, samkvæmt dagskrá. AP fréttaveitan segir mögulegt að það verði fyrr en það sé óljóst. Þetta yrði í fyrsta sinn sem Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðar um það hvort fyrrverandi forsetar njóti sömu friðhelgi og starfsreglur dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna segja að sitjandi forsetar njóti gegn ákærum. Sex af níu hæstaréttardómurum Bandaríkjanna voru skipaðir af forsetum úr Repúblikanaflokknum og þrír þeirra voru skipaðir í embætti af Trump. Thomas er ekki einn þeirra en hann var skipaður af George Bush árið 1991.
Donald Trump hefur verið ákærður fjórum sinnum á undanförnum mánuðum. Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hefur ákært Trump í tveimur málum. Annað þeirra snýr að viðleitni hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna í Bandaríkjunum árið 2020 á landsvísu. Réttarhöldin eiga að hefjast 4. mars. Hitt snýr að opinberum gögnum og leynilegum skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu þegar hann flutti til Flórída og neitaði að afhenta. Réttarhöldin eiga að hefjast í maí. Hann hefur einnig verið ákærður í New York fyrir brot á lögum um kosningar vegna þagnargreiðslu til klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels. Réttarhöldin eiga að hefjast 25. mars. Trump hefur þar að auki verið ákærður í Georgíu og fyrir að reyna að snúa úrslitum kosninganna þar. Ekki er búið að ákveða hvenær réttarhöldin í Georgíu eiga að hefjast en búið er að ákveða að sýnt verði frá þeim í beinni útsendingu.
Bandaríkin Donald Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna Árás á bandaríska þinghúsið Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Joe Biden Tengdar fréttir Greiði mæðgunum ríflega tuttugu milljarða Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump og borgarstjóri New York borgar, hefur verið dæmdur til að greiða mæðgum, sem hann rægði með ásökunum um kosningasvindl, 148 milljónir dala. Það gerir ríflega tuttugu milljarða króna. 16. desember 2023 08:45 Leynileg Rússamappa hvarf á síðustu dögum Trumps í Hvíta húsinu Mappa sem innihélt leynileg skjöl og gögn um afskipti Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016, hvarf á síðustu dögum forsetatíðar Donalds Trump, og hefur ekki fundist enn það dag í dag. Forsvarsmenn leyniþjónusta Bandaríkjanna óttast að sum af best varðveittu leyndarmálum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra geti verið opinberuð. 15. desember 2023 17:05 Segist aðeins myndu verða einræðisherra fyrsta daginn í Hvíta húsinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, neitaði því ekki á kosningafundi í gær að hann myndi nota vald sitt til að ná fram hefndum kæmist hann aftur í Hvíta húsið. 6. desember 2023 06:41 Sótti fjáröflunarráðstefnur með auðjöfrum Clarence Thomas, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, tók að minnsta kosti tvisvar sinnum þátt í fjáröflunarráðstefnum auðugra bandarískra íhaldsmanna. Ráðstefnurnar voru haldnar af Koch-bræðrunum en Thomas hefur aldrei sagt frá þessu á hagsmunaskrám, eins og öðrum umdeildum lúxusferðum og viðskiptaflækjum sem hann hefur átt í gegnum árin. 22. september 2023 16:21 Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Fleiri fréttir „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Sjá meira
Greiði mæðgunum ríflega tuttugu milljarða Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump og borgarstjóri New York borgar, hefur verið dæmdur til að greiða mæðgum, sem hann rægði með ásökunum um kosningasvindl, 148 milljónir dala. Það gerir ríflega tuttugu milljarða króna. 16. desember 2023 08:45
Leynileg Rússamappa hvarf á síðustu dögum Trumps í Hvíta húsinu Mappa sem innihélt leynileg skjöl og gögn um afskipti Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016, hvarf á síðustu dögum forsetatíðar Donalds Trump, og hefur ekki fundist enn það dag í dag. Forsvarsmenn leyniþjónusta Bandaríkjanna óttast að sum af best varðveittu leyndarmálum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra geti verið opinberuð. 15. desember 2023 17:05
Segist aðeins myndu verða einræðisherra fyrsta daginn í Hvíta húsinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, neitaði því ekki á kosningafundi í gær að hann myndi nota vald sitt til að ná fram hefndum kæmist hann aftur í Hvíta húsið. 6. desember 2023 06:41
Sótti fjáröflunarráðstefnur með auðjöfrum Clarence Thomas, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, tók að minnsta kosti tvisvar sinnum þátt í fjáröflunarráðstefnum auðugra bandarískra íhaldsmanna. Ráðstefnurnar voru haldnar af Koch-bræðrunum en Thomas hefur aldrei sagt frá þessu á hagsmunaskrám, eins og öðrum umdeildum lúxusferðum og viðskiptaflækjum sem hann hefur átt í gegnum árin. 22. september 2023 16:21