Veður

Hvass­viðri víða á landinu í dag og gular við­varanir

Atli Ísleifsson skrifar
Það verður hvasst víða um land í dag. Svona verður staðan klukkan 14.
Það verður hvasst víða um land í dag. Svona verður staðan klukkan 14. Veðurstofan

Gera má ráð fyrir hvassviðri víða um land í dag og eru gular viðvaranir í gildi. Eftir útsynning gærdagsins þá nálgast hlýtt loft landið úr suðri og framan af degi þá verður allhvöss sunnanátt með slyddu eða snjókomu, en rigningu sunnantil.

Þeta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að eftir hádegi gangi þó aftur í suðvestan 15 til 23 metra á sekúndu með éljum og þá kólnar heldur aftur. Í nótt mun svo létta til austantil.

Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum, Miðhálendi og Ströndum og Norðurlandi vestra vegna suðvestanáttarinna, dimmra élja og ofankomu. Víða má gera ráð fyrir að akstursskilyrði verði erfið. Viðvaranirnar eru sumar í gildi til miðnættis en nánar má lesa um þær á vef Veðurstofunnar.

„Annað kvöld dregur heldur úr vindi, en á sunnudaginn er aftur von á hlýju lofti með sunnanátt og slyddu eða snjókomu.

Það er því umhleypingasamt næstu daga,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Gular viðvaranir eru víða í gildi. Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Suðvestan 8-15 m/s, hvassast við sjóinn. Éljgagangur, en þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti nálægt frostmarki.

Á sunnudag: Suðlæg átt 5-13 m/s og rigning eða snjókoma með köflum, en lengst af þurrt norðaustanlands, hvassast syðst. Hiti í kringum frostmark.

Á mánudag: Vestlæg átt 5-10 m/s, en 10-15 með suðurströndinni. Él en að mestu bjart austantil. Kólnandi.

Á þriðjudag: Norðvestlæg átt með snjókomu eða éljum, en styttir upp sunnan heiða er líður á daginn. Frost 0 til 7 stig, en hiti um frostmark með suðurströndinni.

Á miðvikudag: Líklega suðlæg átt og rigning eða snjókomu. Hlýnandi, en áfram kalt norðaustantil.

Á fimmtudag: Útlit fyrir norðlæga átt með éljum, en að mestu bjart sunnantil.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×