Veður

Von á rigningu eða snjó­komu seinni partinn

Atli Ísleifsson skrifar
Á morgun kemur alldjúp lægð inn á Grænlandshaf.
Á morgun kemur alldjúp lægð inn á Grænlandshaf. Vísir/Vilhelm

Nú í morgunsárið er hægur vindur á landinu og yfirleitt þurrt og kalt veður. Úrkomusvæði mun nálgast dálítið úr vestri í dag og mun þykkna upp á Suður- og Vesturlandi. Þannig má má búast við rigningu eða snjókomu með köflum á þeim slóðum síðdegis og mun hlýna smám saman. Austanlands verður lengst af þurrt og bjart.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar, en frost verður á bilinu tvö til ellefu stig í dag. 

Fram kemur að á morgun komi svo alldjúp lægð inn á Grænlandshaf. 

„Hún beinir til okkar hlýrri suðlægri átt, allhvass vindur eða stinningskaldi og talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en norðaustantil á landinu verður úrkoman slitróttari. Annað kvöld dregur úr vindi um tíma og það kólnar með skúrum eða slydduéljum.

Á fimmtudag er svo útlit fyrir allhvassa eða hvassa suðvestanátt með éljum, en yfirleitt þurrt veður um landið norðaustanvert,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Sunnan 10-18 m/s og talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en væta með köflum norðaustantil. Hiti 3 til 10 stig. Heldur hægari um kvöldið og kólnar með skúrum eða slydduéljum.

Á fimmtudag: Suðvestan 15-23 og él, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Hiti kringum frostmark.

Á föstudag: Suðvestan og sunnan 13-20 og allvíða slydda eða snjókoma, en rigning suðaustantil. Éljagangur síðdegis, en styttir upp norðaustanlands. Hiti breytist lítið.

Á laugardag: Suðvestanátt og él, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti nálægt frostmarki.

Á sunnudag: Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðaustantil. Hlýnar í veðri.

Á mánudag: Norðvestan- og vestanátt og él. Kólnandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×