Fótbolti

Vanda ræðir við Hareide: „Vitum að hann hefur á­huga“

Sindri Sverrisson skrifar
Åge Hareide og Jóhannes Karl Guðjónsson, sem verið hefur aðstoðarmaður hans, glaðbeittir á Laugardalsvelli í haust. Hareide er áhugasamur um að stýra íslenska landsliðinu áfram.
Åge Hareide og Jóhannes Karl Guðjónsson, sem verið hefur aðstoðarmaður hans, glaðbeittir á Laugardalsvelli í haust. Hareide er áhugasamur um að stýra íslenska landsliðinu áfram. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, er bjartsýn á að samningar takist við norska þjálfarann Åge Hareide um að stýra íslenska karlalandsliðinu áfram eftir að núgildandi samningur rennur út.

Stjórn KSÍ samþykkti fyrir skömmu að gefa Vöndu umboð til að ræða við Hareide um endurnýjun samnings. Þær viðræður eru ekki hafnar en Vanda kveðst vongóð um að þær muni ganga vel.

„Við ætlum að eiga opið og hreinskilið samtal við hann. Það er vilji beggja að ná saman,“ segir Vanda í samtali við Vísi.

Hareide var ráðinn þjálfari Íslands í apríl síðastliðnum, eftir að Arnar Þór Viðarsson var rekinn. Stuttur samningur Norðmannsins framlengdist sjálfkrafa fram yfir EM-umspilið í lok mars, eftir að ljóst varð að Ísland yrði með í því. Þar mætir Ísland liði Ísraels í undanúrslitum, og svo mögulega Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.

Næsta verkefni Íslands eftir það, og þá verkefni Hareide ef samningar nást, verður svo vonandi lokakeppni EM í sumar en annars ný leiktíð Þjóðadeildar UEFA sem hefst í september.

„Við vitum að hann hefur áhuga á að vera með okkur áfram. Þannig að ég á ekki von á öðru en að við náum saman og höldum áfram þessari uppbyggingu, með þennan reynslumikla þjálfara í brúnni. Ég vona að það gangi allt saman upp,“ segir Vanda.

Hareide, sem varð sjötugur í haust, býr yfir gríðarlegri reynslu sem þjálfari en auk þess að stýra landsliðum Danmerkur og Noregs hefur hann stýrt fjölda félagsliða og fagna meistaratitlum í Svíþjóð, Danmörku og Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×