Veður

Hvass­viðri syðst á landinu

Atli Ísleifsson skrifar
Veðurstofan gerir ráð fyrir að víðast hvar verði því fimm til þrettán metrar á sekúndu. Mun hvassara verður sunnantil.
Veðurstofan gerir ráð fyrir að víðast hvar verði því fimm til þrettán metrar á sekúndu. Mun hvassara verður sunnantil. Vísir/Vilhelm

Víðáttumikið lægðasvæði er nú suðvestur af landinu sem heldur austlægum áttum að landinu. Veðurstofan gerir ráð fyrir að víðast hvar verði því fimm til þrettán metrar á sekúndu. Syðst og í kringum Öræfajökul er útlit fyrir allhvassan eða hvassan vind í dag og á morgun.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að dálítill él eru við austurströndina og líkur á smá ofankomu austanlands í dag, en annars verði að mestu léttskýjað.

„Talsvert frost hefur verið á Norður- og Austurlandi í nótt og þar verður áfram kalt í dag. Frostlaust er syðst á landinu en annars er frost á bilinu 0 til 17 stig.

Lítilla breytinga er að vænta í veðrinu á morgun og föstudag, áframhaldandi austanáttir með bjartviðri og köldu veðri, en lítilsháttar él austast,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Austan og norðaustan 5-13 m/s, en 13-20 syðst. Dálítil él fyrir austan og með norðurströndinni, en annars að mestu bjart. Frost 0 til 10 stig, kaldast norðantil, en hiti um eða yfir frostmarki við syðst.

Á föstudag og laugardag: Austlæg átt, 3-10 m/s, skýjað og stöku él austantil, en yfirleitt bjart um landið vestanvert. Frost 1 til 15 stig, kaldast á Norðurlandi.

Á sunnudag: Austlæg eða breytileg átt og lítilsháttar él við suðaustur- og austurströndina, en annars bjartviðri. Hiti um eða yfir frostmarki syðst, en annars frost 0 til 12 stig.

Á mánudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt með dálitlum éljum norðaustantil, en annars bjart með köflum. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag: Líklega breytileg átt með lítilsháttar vætu sunnanlands, en annars bjartviðri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×